fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Fréttir

Allt logar stafna á milli hjá sósíalistum: Jóna hættir í flokknum og urðar yfir Hallfríði

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 24. apríl 2025 10:30

Allt logar stafna á milli hjá sósíalistum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert lát virðist vera á væringum innan Sósíalistaflokks Íslands. Undanfarnar vikur hefur mikil orrahríð staðið um Gunnar Smára Egilsson og hann sakaður um ofríki og andlegt ofbeldi svo eitthvað sé nefnt. Hafa deilurnar í raun klofið flokkinn þar sem sósíalistar skiptast í tvær fylkingar, með eða á móti Gunnari Smára, og hafa þung orð verið látin falla.

Enn eitt reiðaraslagið átti sér svo stað í gær þegar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði sig úr flokknum eftir hatursfulla athugasemd frá Maríu Pétursdóttur, fyrrum formanni málefnastjórnar flokksins, sem sat auk þess á 2. sæti á lista Sósíalista í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu alþingiskosningum.

Í kjölfarið loguðu spjallhópar sósíalista á Facebook og sá pólitískur leiðtogi þeirra, Sanna Magdalena Mörtudóttir, sig knúnna til þess að skrifa hvatningarskeyti þar sem hún bað flokksmenn sína að setja klæði á vopnin og standa saman.

Ákvað að jafna um sakirnar við Hallfríði

Það var þó til lítils og aftur sauð upp úr þegar Jóna Fanney Friðriksdóttir, fyrrum formaður Leiðsagnar – félags leiðsögumanna, kvaddi sér hljóðs og sagðist líka vera hætt í flokknum. Ekki var það Maríu að kenna í þetta skiptið heldur átti hún sökótt við Hallfríði Þórarinsdóttur, sem situr í framkvæmdastjórn flokksins.

Eins og greint var frá í fjölmiðlum sagði Jóna Fanney af sér formennsku í Leiðsögn í byrjun árs 2024 eftir mikla ólgu innan stjórn félagsins en þar var Hallfríður varamaður í stjórn. Var Jóna Fanney sökuð um „óvirðingu fyrir góðri stjórnsýslu, týnt bókun um alvarlegt eineltismál, hrakið burt starfsmann félagsins, gefið stjórn rangar upplýsingar um fjármál félagsins og ráðið sig sjálfa og varaformann á skrifstofu félagsins sem starfsfólk,“ eins og fram kom í frétt Vísis um væringarnar en á móti sakaði Jóna Fanney  stjórnarmenn um að hafa beitt sig „blekkingum, grófum rógburði og andlegu ofbeldi“.

Ljóst er að Jónu Fanneyju hefur hlaupið kapp í kinn við deilurnar hjá sósíalistum því hún nýtti tækifærið í gær til að gera upp sakirnar við Hallfríði og sakaði hana um að hafa borið á sig þungar sakir á átakafundi innan Leiðsagnar og bera nánast höfuðábyrgð á brotthvarfi hennar úr formannsstóli.

„Vegna þess að þú, Hallfríður Þórarinsdóttir, ert í framkvæmdastjórn hef ég ákveðið að segja mig úr Sósíalistaflokki Íslands og jafnframt hef ég ekki áhuga lengur á að styrkja Samstöðina. Ég hef enga trú á flokknum eða afleggjurum hans (Samstöðinni) á meðan þú ert þar innanborðs,“ skrifaði Jóna Fanney á Rauða þráðinn, umræðuhóp sósíalista.

Í kjölfarið urðu talsverðar umræður við þráðinn og bentu nokkrir á að ekkert í fundargerð þessa tiltekna fundar hjá Leiðsögn benti til þess að Hallfríður hefði stigið fram með slíkar ásakanir.

Að endingu var þræðinum eytt en ekki liggur fyrir hvort Jóna Fanney hafi sjálf séð af sér eða admin fjarlægt skeytið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“