fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Fréttir

Tryggvi deilir 10 lífslexíum sem hann lærði í lögreglunni – „Miðaldra konur áreita karlkyns lögreglumenn mest“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 25. febrúar 2025 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Lögreglustarfið er skemmtilegt, orkugefandi en líka oft lýjandi, erfitt, tilgangsríkt, hættulegt, óvænt, og spannar allt frá mjög rólegum dögum (næturvakt á virkum degi í smábæ) yfir í mikla álagsdaga (næturvakt um stórar helgar í Reykjavík),“

segir Tryggvi Hjaltason, greinandi hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP sem einnig gegnir formennsku í Hugverkaráði hjá Samtökum iðnaðarins.

Tryggvi er með BS-gráðu í Global Secu­rity and In­telli­gence Studies frá Embry Riddle-há­skól­an­um í Arizona og með meist­ara­gráðu í fjár­mál­um fyr­ir­tækja. Hann hef­ur einnig klárað grunn­nám í hag­fræði, verið í Lög­reglu­skóla rík­is­ins, menntaði sig í leyniþjónustu í Bandaríkjunum og var í hernum um tíma. 

Tryggvi segist ekki hafa starfað í lögreglunni síðan í september 2015 og sakna þess oft. Ég hef alla tíð síðan borið mikla virðingu fyrir lögreglunni.

Í færslu sem Tryggvi skrifar a Facebook með yfirskriftina „Hvað lærði ég í lögreglunni? minnist hann þess að þrettán ár eru síðan hann útskrifaðist sem lögreglumaður. 

Ég fór í lögregluskólann samhliða mastersnámi mínu í fjármálum því mér leiddist í því námi. Lögregluskólinn var mun skemmtilegri.

Ég hef starfað í eða náið með eftirfarandi stofnunum í lögreglunni:

Lögreglunni í Vestmannaeyjum

Rannsókn á höfuðborgarsvæðinu (Hverfisgötu)

Ríkislögreglustjóra

Embætti Sérstaks Saksóknara

Sérsveitinni (fylgdi henni í tvær vikur, var ekki í henni)

Kynferðisbrotadeild

Lífslexíurnar tíu

Deilir Tryggvi tíu lífslexíum sem hann fékk við að starfa í lögreglunni:

  1. Drukknir Íslendingar bera enga virðingu fyrir valdi og hlusta almennt ekkert á hvað lögreglumenn segja.
  2. Eitt algengasta mynstrið með unga stráka (13-18) sem voru komnir í hörð afbrot var að pabbinn var fjarverandi í lífinu þeirra.
  3. Algengasti fyrirlestur sem ég heyrði aftur í lögreglubíl frá einstaklingum sem voru handteknir fyrir eignaspjöll eða ofbeldi var hversu frábært kannabis væri (og hollt).
  4. Algengasti fyrirlesturinn sem ég heyrði frá einstaklingum sem voru í einhverskonar raunveruleikarofi og voru að valda sjálfum sér eða öðrum hættu var hversu frábærir sveppir væru (og hollir).
  5. Þeir sem áreita karlkyns lögreglumenn mest eru konur á miðjum aldri.
  6. Langflestir lögreglumenn eru góðir einstaklingar tilbúnir að fórna sér fyrir aðra. En það þarf að vera auðveldara að reka slæma lögreglumenn. Sérstaklega þá sem verða æstir hratt á vettvangi og njóta þess að valdbeita aðra. Sem nemi sá ég tvo slíka í starfi og það var glatað.
  7. Þegar það þarf að handtaka fólk þá er það bras, því meirihluti fólks sem er handtekið er undir áhrifum og streitist á móti. Þetta er oft hættulegasti hluti lögreglustarfsins og erfiður viðfangs. Margir lögreglumenn fá áverka við handtökur eins og marbletti, tognanir og rispur sem þeir vilja ekki tala um.
  8. Reyndir lögreglumenn hafa oft ljótan svartan húmor sem ég átti alltaf erfitt með. Ég lærði seinna af afbrotasálfræðing að þetta er kalla „psychohygenic“ húmor og er leið til að losa um áföll í litlum skömmtum. Þetta er þekkt í stéttum sem takast á við dauðsföll og ofbeldi reglulega.
  9. Ég gat líkamlega ekki unnið við rannsóknir á kynferðisbrotum gegn börnum. Ég varð hreinlega veikur, óglatt og svaf ekki. Ég ber ómælda virðingu fyrir þeim sem geta rannsakað slík mál. Það er það erfiðasta sem ég hef starfað við á ævinni.
  10. Í flestum málum eru frásangir brotaþola og sakbornings ólíkar og oft mjög ólíkar. Upplifun fólks af raunveruleikanum er augljóslega ólík og flestir eru því miður ekki mjög áreiðanleg vitni (sem sést t.d. þegar fólk kemur með vitnisburð en síðan eru til myndbandsupptökur af vettvangi).
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“