Þetta sagði hann í samtali við The Economist. Hann sagði að staðan á vígvellinum núna sé sú að báðir aðilar reyni að ná sem bestri stöðu áður en til eiginlegra samningaviðræðna kemur. Hann sagði einnig að raunverulegar samningaviðræður muni ekki eiga sér stað fyrr en á síðari helmingi 2025 en fram að því muni Rússar lenda í miklum mótvindi.
Hann sagði það aðeins tímaspursmál hvenær Rússar ná bænum Chasiv Yar á sitt vald en bærinn er að hans sögn mikilvægur fyrir hugsanlega sókn Rússa að síðustu stóru bæjunum, sem eru á valdi Úkraínu, í Donetsk.
Hann spáir því að Rússar hrindi þriggja stiga áætlun af stað nú í maí, markmiðið sé að raska jafnvæginu í Úkraínu. Fyrsta stigið er hreinn stríðsrekstur og þrátt fyrir að Bandaríkjaþing hafi nýlega samþykkt hjálparpakka upp á 60 milljarða til handa Úkraínu, þá muni taka tíma að koma vopnunum tímanlega á vígvöllinn.
Annað stig áætlunarinnar er að hans sögn að dreifa fölskum upplýsingum til að grafa undan fyrirætlunum Úkraínu um herkvaðningu og lögmæti þess að Zelenskyy gegni forsetaembættinu en formlega séð lýkur kjörtímabili hans þann 20. maí en samkvæmt úkraínsku stjórnarskránni getur forsetinn setið lengur, án þess að kosið sé, ef stríð geisar.
Þriðja og síðasta stigið er að Rússar munu reyna að einangra Úkraínu á alþjóðavettvangi.