Hundaeiganda nokkrum var bjargað við illan leik úr bráðri lífshættu úr klettum við Perranporth-strönd, nærri Cornwall í Suðvestur-Englandi, í vikunni. Björgunaraðilar náðu þó ekki að bjarga trygglyndum hundi mannsins, sem vék hvergi frá hlið eiganda síns í lífsháskanum en málið hefur vakið nokkra athygli ytra og syrgja margir örlög ferfætlingsins.
Slysið átti sér stað síðastliðinn miðvikudag. Maðurinn var á gangi með hundi sínum í hinu ægifagra umhverfi þegar honum skrikaði fótur og féll niður á nærliggjandi kletta. Þar lá maðurinn í sjálfheldu en en blessunarlega heyrðu aðrir vegfarendur í neyðarópum hans og kölluðu til viðbragðsaðila sem komu þegar á staðinn.
Sérstaklega vont veður var á þessum slóðum og var gerður út björgunarbátur til að ná til mannsins auk þess sem þyrlusveit var kölluð út.
Maðurinn slasaðist illa á fæti en sjónarvottar hafa greint frá því að hundur hans, sem sennilega dróst niður með honum í fallinu hafi ekki vikið frá honum á þessari ögurstundu. Að endingu komst sigmaður í björgunarþyrlu að manninum og hífði hann á brott en náði ekki til hundarins.
Björgunarmenn gerðu nokkrar heiðarlegar tilraunir til ná til hundarins en veðrið versnaði hratt og að endingu var metið sem svo að frekari tilraunir væru of hættulegar en þá mátti greina að hundurinn var að berjast fyrir lífi sínu í öldurótinu.