fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Fréttir

„Það er heimatilbúið vandamál að hafa þessi mál í skötulíki“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 25. janúar 2024 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að svipta eigi þau flugfélög lendingarleyfi sem afhenda ekki stjórnvöldum og yfirvöldum farþegalista.

Morgunblaðið greindi frá því í gær að tíu erlend flugfélög afhendi ekki stjórnvöldum lista yfir þá farþega sem hingað koma með þeim. Lög kveða á um að fyrirtæki sem annast flutning farþega til og frá landinu sé skylt að afhenda lögreglu upplýsingar um farþega og áhöfn.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, lýsti áhyggjum sínum af þessu í viðtali við Morgunblaðið og sagði að hending ein réði því hvort brotamenn séu stöðvaðir á landamærum þegar kerfisbundið landamæraeftirlit er ekki til staðar eins og er á ytri landamærum Schengen.

Ásmundur gerði þetta að umtalsefni á Alþingi í gær.

„Frumskilyrði þess að gæta öryggis íbúa landsins er að landamæraeftirlitið virki og við vitum hverjir koma til landsins. Þess vegna hvílir sú skylda á flugfélögum að skila stjórnvöldum og lögreglunni farþegalistum yfir þá farþega sem koma til landsins. Árum saman hafa sömu flugfélögin sem fljúga til landsins komist upp með það að skila ekki farþegalistum,“ sagði Ásmundur sem tók fram að þetta væri ólíðandi.

„Glæpamenn eru sérstaklega útsmognir við að finna smugu á kerfinu og koma sér til landsins með þeim flugfélögum sem skila ekki listum. Það er heimatilbúið vandamál að hafa þessi mál í skötulíki. Samkvæmt lögum er hægt að svipta flugfélög lendingarleyfi sem afhenda ekki stjórnvöldum og yfirvöldum farþegalistana og því á miskunnarlaust að beita,“ sagði hann.

Ásmundur kom inn á annað vandamál sem lögreglan á Suðurnesjum, næst stærsta lögregluembætti landsins, glímir við.

„Það er húsnæðislaust. Lögreglustöðin við Hringbraut í Reykjanesbæ er lokuð vegna myglu. Það sama á við um stöðina í Grindavík sem auk þess er á hættusvæði og er lokuð og þangað fer enginn maður.“

Ásmundur sagði gríðarlegar kröfur gerðar til lögreglunnar á Íslandi og verkefni og aðstaða lögreglunnar á Suðurnesjum sé eiginlega fordæmalaus.

„Er til of mikils mælst að við tryggjum lögreglunni á Suðurnesjum viðunandi vinnuaðstöðu og byggð verði ný lögreglustöð í Reykjanesbæ til að hýsa þá mikilvægu starfsemi sem lögreglan sinnir og glímir við þessa dagana, sem er nánast óviðráðanleg?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásakanir ganga á víxl á milli eigenda fasteignar á Vesturlandi – Kærðir fyrir húsbrot en svöruðu með fullyrðingum um hústöku og sóðaskap

Ásakanir ganga á víxl á milli eigenda fasteignar á Vesturlandi – Kærðir fyrir húsbrot en svöruðu með fullyrðingum um hústöku og sóðaskap
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varar foreldra við að setja handklæði utan um axlir barna – Er stórhættulegt og til er mun betri leið

Varar foreldra við að setja handklæði utan um axlir barna – Er stórhættulegt og til er mun betri leið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“