Gerði Sigmar að umtalsefni grein sem Davíð Bergmann Davíðsson, starfsmaður Fjölsmiðjunnar skrifaði á Vísi á dögunum.
„Hann nefnir þar að í síðasta mánuði, á síðustu örfáum vikum, hafa þrjú ungmenni dáið vegna vímuefnafaraldursins sem nú geisar: ung kona, 22 ára, ungur karl, 23 ára, og 17 ára drengur. 17 ára unglingur. Þetta er á fáeinum vikum,“ sagði Sigmar.
Hann segist ekki átta sig á því hvað þurfi að gerast til að við sem samfélag og stjórnvöld vöknum af þeim þyrnirósarsvefni sem virðist vera yfir okkur öllum.
„Viðbrögð okkar við þessum alvarlega faraldri eru ekki í neinu samræmi við alvarleikann. Mér finnst það skrýtið. Við sjáum það rosalega vel núna út af ástandinu á Reykjanesskaga að við stöndum með Grindvíkingum og þeim sem þurfa að mæta einhverjum ógnum í umhverfinu. Sjálfsagt er að gera það og það mun kosta mikinn pening. Af hverju nær þessi hugsun ekki til okkar þegar við erum að missa tugi einstaklinga? Það eru tugir einstaklinga, mest ungt fólk, að látast á hverju einasta ári út af vímuefnafaraldri sem geisar. Af hverju nær þessi sama hugsun ekki þangað inn,“ spurði Sigmar í ræðu sinni.
Hann hvatti þingheim til að hugsa aðeins um þetta.
„17 ára unglingur. Hugsið ykkur sorgina og erfiðleikana fyrir aðstandendurna. Þetta á ekki bara að vera sorg fyrir aðstandendur, þetta á að vera sorg fyrir samfélagið allt. Vandinn er kannski sá að við sjáum ekki alltaf, þegar fólk deyr úr alkóhólisma, mynd af því í blöðunum þar sem dánarmeinið er skrifað undir, rétt eins og gerist t.d. þegar fólk lætur lífið í bílslysum. Það er auðvitað ekki þannig að aðstandendur séu alltaf að flagga því þegar fólk deyr úr alkóhólisma. Það er eðlilegt að svo sé ekki,“ sagði Sigmar sem sagði að það breyti engu um að staðan er svona í raun og veru.
„Það eru tugir að deyja á hverju einasta ári. Viðbragðið okkar er í skötulíki. Við þurfum að efla meðferðarstarf, við þurfum að efla forvarnir, við þurfum að reisa neyðarrými svo að fólk komi ekki endalaust að lokuðum dyrum. Þetta er ekki flokkapólitík. Þetta er verkefni sem við, samfélagið allt, þurfum að taka í fangið. Við þurfum að gera miklu, miklu betur.“