Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af aðila á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar og varðar skemmdarverk á bifreið lögreglumanns þann 20. desember 2023.
Sá sem býr yfir upplýsingum um viðkomandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við héraðssaksóknara, Skúlagötu 17 í Reykjavík í síma 444 0150.
Ef einhverjir þekkja til aðilans, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í héraðssaksóknara, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@hersak.is