fbpx
Sunnudagur 14.september 2025
Fréttir

Óvenjulegt mál hjá lögreglu: Tilkynnti sjálfan sig því hann vildi ekki stofna öðrum í hættu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. janúar 2024 07:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk óvenjulega tilkynningu á sitt borð í nótt.

Í skeyti segir að tilkynnt hafi verið um mögulegan ölvunarakstur, en skömmu síðar bast önnur tilkynning og var hún frá ökumanninum sjálfum sem tilkynnti sjálfan sig.

„Þegar lögregla kom á vettvang sagði ökumaðurinn að hann hafi áttað sig á því að hann gæti ekki haldið akstri áfram sökum ölvunarástands og hann vildi ekki stofna öðrum í hættu. Ökumaðurinn handtekinn en laus að blóðsýnatöku lokinni,“ segir í skeyti lögreglu.

Nóttin virðist hafa verið tiltölulega róleg hjá lögreglu. Tilkynnt var um þjófnað á leikjatölvu úr félagsmiðstöð í grunnskóla í Reykjavík og er málið í rannsókn.

Lögregla fékk svo tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir þar sem maður var að bera mikið af munum um miðja nótt. Lögregla fann manninn þar sem lögreglu grunaði að hann væri með meint þýfi frá nærliggjandi fyrirtækjum. Málið er í rannsókn.

Þá voru afskipti höfð af nokkrum ökumönnum sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sýknaður af ákæru um líkamsárás eftir slagsmál á Þjóðhátíð í Eyjum – Sögðust hafa séð tvo menn koma út úr tjaldinu þeirra

Sýknaður af ákæru um líkamsárás eftir slagsmál á Þjóðhátíð í Eyjum – Sögðust hafa séð tvo menn koma út úr tjaldinu þeirra
Fréttir
Í gær

Fyrrum FBI-fulltrúi: Morðingi Charlie Kirk alls „enginn viðvaningur“

Fyrrum FBI-fulltrúi: Morðingi Charlie Kirk alls „enginn viðvaningur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan á Suðurnesjum fór ekki að lögum í máli bandarískrar konu

Lögreglan á Suðurnesjum fór ekki að lögum í máli bandarískrar konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýður kærir synjun á niðurrifi Hvítabandsins

Lýður kærir synjun á niðurrifi Hvítabandsins