Þetta sagði hann í samtali við Reuters á föstudaginn. Þetta ákall hans um hjálp er tilkomið vegna stöðunnar á vígvellinum í austurhluta Úkraínu þar sem úkraínskar hersveitir eru í vörn en þær gera þó gagnsóknir þegar tækifæri gefst.
„Þetta er virk vörn, þar sem við erum ekki bara í vörn heldur gerum einnig gagnsóknir og stundum skiptum við yfir í hreina sókn,“ sagði Syrskyi.
Þrátt fyrir að víglínan í austurhluta Úkraínu breytist ekki mikið dag frá degi vildi Syrskyi ekki útiloka að Úkraínumenn geti rofið varnir Rússa og sótt fram. „Það eru alltaf tækifæri, þú verður bara að finna þau og nýta þau,“ sagði hann og bætti við að rússnesku hermennirnir séu mun fleiri en þeir úkraínsku.
Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti Úkraínu fyrir helgi og skrifaði undir nýja samning á milli ríkjanna um öryggismál. Á fréttamannafundi sagði hann „að ef við hikum núna, þá hvetjum við ekki aðeins Pútín, heldur einnig Bandamenn hans í Norður-Kóreu, Íran og víðar“.
Með nýja samningnum heita Bretar auknum stuðningi við Úkraínu og lofa að hann verði ekki minni en 2,5 milljarðar punda.