Að minnsta kosti þrír einstaklingar voru handteknir í lögregluaðgerð í Flúðaseli í Breiðholti skömmu eftir hádegi í dag. RÚV greindi fyrst frá en á vef miðilsins má sjá myndir frá aðgerðinni. Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Kemur fram í frétt miðilsins að lögregla hafi verið að fylgja eftir máli sem hefur verið til rannsóknar.
Útkallið var vegna einstaklinga í sömu íbúð og lögregla var kölluð út vegna í byrjun september og vakti mikla athygli. Þar handtók lögregla mann og leiddi hann út á nærbuxunum einum fata sem vakti hörð viðbrögð hjá Afstöðu, félagi fanga, sem birti yfirlýsingu vegna málsins. Sakaði Afstaða lögreglu um að svipta fólk mannlegri reisn með því að handtaka það fáklætt.
Í frétt DV um málið var haft eftir nágranna í Flúðaseli að umræddur maður hafi oft sést spranga um stigagang hússins á nærbuxunum einum fata en hann og tveir samleigjendur hans hafi valdið usla um nokkurt skeið.
„Það er búið að vera vesen með þessa gaura í smá tíma. Hafa stolið frá öðrum íbúum stigagangsins,“ segir nágranni sem DV ræddi þá. Þá hafi verið orðrómur um fíkniefnasölu úr leiguherbergi þeirra en það er ekki staðfest. Um miðjan ágúst hafi farið fram húsleit í herberginu.