fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Pútín hefur í hótunum við annað ríki – „Munu að lokum standa frammi fyrir einhverju viðbjóðslegu“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. desember 2023 07:00

Pútín er ekki í uppáhaldi hjá öllum samlöndum sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Úkraínu er fólk ekki í neinum vafa um að Vladímír Pútín hefur ekki í hyggju að láta sér duga að ráðast á Úkraínu, hann muni ráðast á fleiri ríki þegar stríðinu í Úkraínu er lokið. Ný ummæli Pútíns vekja því mikla athygli í þessu samhengi.

Í nýlegri ræðu sem hann flutti frá Kreml réðst hann harkalega að Lettlandi og meðferð Letta á rússneska minnihlutanum þar í landi.

„Ef þeir fara svona með fólk sem hefur búið í landinu, unnið í landinu og lagt góða hluti af mörkum og fara svona svínslega með það, þá munu þeir að lokum standa frammi fyrir einhverju viðbjóðslegu,“ sagði Pútín.

þegar hann segir að Lettar hafi „farið svona með fólk“ á hann væntanlega við Rússafóbíu en hann hefur mikið rætt um hana síðan hann lét her sinn ráðast inn í Úkraínu.

Hann sagðist ekki telja að fólk verði hamingjusamt við að framfylgja pólitík af þessu tagi. Hvað varðar rússneska minnihlutann í Lettlandi sagðist hann ekki vita hversu stór hann er nú en áður hafi 40% landsmanna verið rússneskumælandi, nú séu hins vegar ekki margir eftir.

Samkvæmt tölum frá World Directory of Minorities and Indigenous Peoples eru 25,6% íbúa Lettlands af rússneskum uppruna. Það eru um 450.000 manns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“