fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Fréttir

Arndís Anna sögð hafa dáið áfengisdauða á Kíkí

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. nóvember 2023 10:03

Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, var ofurölvi inni á salerni skemmtistaðarins Kíkí á aðfaranótt laugardags og svaf áfengisdauða. Þetta kemur fram í frétt Nútímans sem byggir á heimildarmönnum innan lögreglunnar.

„Þegar dyraverðir skemmtistaðarins fóru að kanna hvers vegna salernið hafði verið læst í svo langan tíma, þar sem vísa átti gestum út vegna lokunar, komu þeir að þingmanninum og vöktu hann. Arndísi Önnu hefur greinilega brugðið við þetta, eins og hún greinir frá sjálf, og brást hún því hin versta við og þess vegna var kallað eftir aðstoð lögreglu,“ segir í fréttinni.

Nútíminn bendir á að atvikið hafi komið fyrir í dagbók lögreglunnar á laugardagsmorgun en þar segir: „Dyraverðir á skemmtistað í miðbænum óska eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja ofurölvi aðila af staðnum.“ Ljóst er að atvikið átti sér stað skömmu eftir lokun staðarins en þá var Arndís Anna áfengisdauð inni á salerninu.

Í yfirlýsingu sem Arndís Anna birti um helgina segir hún að framganga dyravarða á Kíkí hafi verið óþarflega harkaleg og niðurlægjandi:

„Ég brá mér á skemmtistað á föstudagskvöld, eins og gengur og gerist, og fór á einn minn uppáhaldsstað, Kiki. Ég fór á salernið og var búin að vera þar sjálfsagt í talsverðan tíma þegar dyraverðir opna hurðina. Mér brá við þetta og við að það stæði til að bera mig út með valdi, þegar mér fannst ekki tilefni til. Ég hef skilning á því að starf dyravarða á skemmtistöðum sé erfitt og ekki síst með fullt hús af fólki í misjöfnu ástandi, þó mín upplifun hafi verið sú að þarna hafi framganga þeirra verið óþarflega harkaleg og niðurlægjandi. Ég hef talað við fyrirsvarsmann staðarins sem bað mig afsökunar fyrir þeirra hönd, sem mér þykir afar vænt um.

Ég er enn fremur þakklát lögreglunni fyrir þeirra viðbrögð og fagmennsku, og fyrir alúðina sem þau sýndu mér í kjölfarið, enda komst ég í talsvert uppnám við þessar aðfarir. Það að lögreglan taki útkall frá hinsegin skemmtistað alvarlega, hvers eðlis sem það er, og bregðist svona skjótt við er sérstaklega mikilvægt og yljaði það mér um hjartaræturnar í öllum þessum ósköpum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“