fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Körfuknattleiksdeild Álftaness leikur til styrktar Ljósinu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. október 2023 14:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósið og körfuknattleiksdeild Álftaness hafa framlengt samstarf sitt sem hófst á síðasta keppnistímabili. Markmið samstarfsins er að auka vitund á starfsemi samtakanna og fjölga svokölluðum Ljósavinum. Í því tilefni er boðað til góðgerðaleiks næstkomandi fimmtudag, þegar liðið tekur á móti Njarðvíkingum í Forsetahöllinni. Aðgangseyrir rennur óskiptur til samtakanna og munu leikmenn og forsvarsmenn deildarinnar afhenda ávísun að andvirði einnar milljónar króna, líkt og gert var á síðasta keppnistímabili.

Halldór Kristmannsson, sem hefur verið öflugur bakhjarl körfuboltans á Álftanesi, leggur fram myndarlegt fjárframlag til stuðnings samstarfsins.

„Við sem nýliðar í efstu deild körfuboltans viljum nýta þá athygli sem okkur er veitt til góðs. Markmiðið er bæði að styðja við bakið á, og vekja athygli á, starfsemi Ljóssins, sem og að vinna gott starf í þágu körfuboltans og samfélagsins á Álftanesi. Við búumst við troðfullri Forsetahöll á fimmtudag,“ segir Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari liðsins.

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Ljóssins.

Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins segir það fagnaðarefni að samstarf Ljóssins og Álftaness haldi áfram en mikil áhersla er lögð á hreyfingu og íþróttir í starfi Ljóssins. „Okkur þykir mjög vænt um það að Álftanes beri merki okkar á sínum treyjum og auki þar með sýnileika okkar í samfélaginu.“

Hægt er að gerast styrktaraðili samtakanna með því að skrá sig sem Ljósavin eða leggja inn á styrktarreikning: 0130-26-410420, kt. 590406-0740.

Leikur Álftaness og Njarðvíkur í Subway deild karla hefst kl. 19:15 á fimmtudaginn og er fólk hvatt til að mæta snemma til leiks þar sem búist er við fullu húsi. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Börn Lúðvíks Péturssonar krefjast úrskurðar um að hann sé látinn

Börn Lúðvíks Péturssonar krefjast úrskurðar um að hann sé látinn
Fréttir
Í gær

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks