Maðurinn sem lést af slysförum á Skógaheiði síðastliðinn fimmtudag hét Sigurður Sigurjónsson, bóndi á Ytri Skógum. Þetta kemur fram í færslu hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Sigurður var 76 ára og lætur eftir sig eiginkonu og 5 uppkomin börn. Tildrög slyssins eru enn í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurlandi.