fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Samskip fordæmir risasekt Samkeppniseftirlitsins – „Vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins í málinu eru Samskipum mikil vonbrigði“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 31. ágúst 2023 19:00

Samskip Mynd: Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samskeppniseftirlitið hefur lagt sekt upp á 4,2 milljarða króna á hendur flutningafyrirtækinu Samskip fyrir ólöglegt samráð við Eimskip. Eimskip hefur þegar gengist við brotunum. Samskip gerir það hins vegar ekki.

Samkeppniseftirlitið birti tilkynningu um málið í dag, sem og úrskurðinn í heild, á heimasíðu sinni. Í tilkynningunni segir:

„Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun nr. 33/2023 lokið rannsókn á brotum Samskipa á samkeppnislögum. Það er niðurstaða eftirlitsins að Samskip hafi með alvarlegum hætti brotið gegn banni 10. gr. samkeppnislaga og 1. mgr. 53. gr. EES-samningsins, með ólögmætu samráði við Eimskip.

Þá er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Samskip hafi við rannsókn málsins brotið gegn 19. gr. samkeppnislaga með rangri, villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu.

Samanlagðar stjórnvaldsektir vegna framangreindra brota nema 4,2 milljörðum króna.

Jafnframt er lagt fyrir Samskip að grípa til tiltekinna aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frekari brot og efla samkeppni.“

Rannsókn málsins hefur staðið í tíu ár og hófst hún með húsleitum hjá báðum fyrirtækjunum. Samkvæmt niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins ná brot Samskipta meðal annars til eftirfarandi háttsemi (sjá nánar á vef RÚV):

  • Samráð um breytingar á siglingakerfum og takmörkun flutningsgetu.
  • Samráð um skiptingu á mörkuðum eftir stærri viðskiptavinum í sjó- og landflutningum (forðast að keppa um stærri viðskiptavini hins).
  • Samráð um álagningu gjalda og afsláttarkjör í flutningsþjónustu og miðlun á mikilvægum verðog viðskiptaupplýsingum.
  • Samráð um landflutningaþjónustu og skiptingu á mörkuðum á tilteknum flutningaleiðum á Íslandi.
  • Samráð um sjóflutninga milli Íslands og annarra landa.
  • Samráð um skipaafgreiðslu, gagnkvæma leigu eða lán á gámum

„Brot Samskipa voru alvarleg og umfangsmikil og náðu yfir langt tímabil, á mörkuðum þar sem þátttakendur samráðsins höfðu yfirburðastöðu,“ segir í úrskurðinum.

Samskip með harðorða yfirlýsingu

Samskip hefur brugðist við úrskurði Samkeppniseftirlitsins með harðorðri yfirlýsingu. Þar segir að Samkeppniseftirlitið hafi farið offari í rannsókn sinni, málsmeðferðin hafi verið þung og haft lamandi áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Samskip unir ekki úrskurðinum og hyggst leita allra tiltækra leiða til að fá honum hnekkt. Saka Samskip Samkeppniseftirlitið um rangfærslur og villandi framsetningu. Sannleikurinn sé sá að starfsemi Samskipa hafi ávallt einkennst af samkeppni á öllum mörkuðum. Tilkynningin er eftirfarandi:

„Samskip fordæma ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

Samskip hafna niðurstöðu rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á ætluðu samráði Eimskips og Samskipa á árunum 2006 til 2013. Ályktanir um víðtækt og þaulskipulagt samráð eru með öllu tilhæfulausar og úr tengslum við gögn og staðreyndir. Samskip fordæma vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins við rannsóknina og hyggjast fá niðurstöðunni hnekkt.

Starfsemi Samskipa hefur ávallt grundvallast á samkeppni á öllum mörkuðum og félagið leiðandi í að skapa virka samkeppni og hagkvæmar lausnir í flutningum og tengdri þjónustu. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins einkennist af hálfsannleika, villandi framsetningu og rangfærslum.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur að grunni til staðið frá árinu 2010. Ráðist var í húsleitir hjá Samskipum og Eimskipi á árunum 2013 og 2014 og hald lagt á mikið magn gagna. Frá húsleit 2013 eru liðin tíu ár. Kenningar og ályktanir Samkeppniseftirlitsins urðu svo fyrst ljósar þegar fyrirtækjunum var birt andmælaskjal í tveimur hlutum um ætluð samráðsbrot. Fyrri hluti skjalsins var birtur 6. júní 2018 en sá síðari 13. desember 2019. Voru þá liðin sex ár frá húsleit og nær tíu ár frá upphafi rannsóknar. Undir lok nóvember 2020 bættist svo við þriðja andmælaskjalið og skiluðu Samskip athugasemdum í janúarbyrjun 2021.

Samanlagt voru andmælaskjölin á þriðja þúsund blaðsíður og fylgiskjöl skiptu tugum þúsunda. Samskip skiluðu ítarlegum efnislegum athugasemdum við andmælaskjölin og sýndu fram á að frumniðurstöður Samkeppniseftirlitsins væru í grundvallaratriðum rangar. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins og ákvörðun um sektargreiðslur lá svo fyrir nú 31. ágúst.

Fyrir liggur að Eimskip lauk málinu með sátt við Samkeppniseftirlitið í júní 2021, þrátt fyrir að hafa áður haft uppi hörð andmæli gegn málsmeðferð og efnislegum ályktunum Samkeppniseftirlitsins. Samskip telja ljóst að ákvörðun Eimskips hafi ekki byggt á efni málsins heldur mati nýrra stjórnenda félagsins á því hvað væri farsælast fyrir rekstur þess næstu árin. Umhugsunarefni er ef ráðandi fyrirtæki á markaði getur með þessum hætti notað digra sjóði til að kaupa það frá frekari málsmeðferð. Þá er alvarlegur hlutur ef löng og þung málsmeðferð og miklar valdheimildir eftirlitsstjórnvalda geta orðið til þess að fyrirtæki kjósi heldur að játa sök og greiða sekt, án þess að efni séu til, en að leiða hið rétta og sanna í ljós fyrir æðra stjórnvaldi eða dómstólum.

Vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins í málinu eru Samskipum mikil vonbrigði. Málsmeðferðin hefur verið einstaklega þung og haft lamandi áhrif á starfsemi og starfsfólk Samskipa. Stofnunin hefur farið offari við rannsókn málsins og gagnaöflun og hefur nú komist að niðurstöðu sem ekki er í nokkrum tengslum við raunveruleikann. Settar eru fram kenningar og ályktanir um brot án þess að beinum sönnunargögnum sé til að dreifa. Kenningum hefur verið fundin stoð með því að fara beinlínis rangt með efni gagna eða staðreyndir máls eða með augljósum rangtúlkunum.

Samskip munu ekki una niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og mun félagið leita allra úrræða sem því eru tæk að lögum til að fá henni hnekkt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rússnesk skip og kafbátar horfnir úr sýrlenskri flotastöð

Rússnesk skip og kafbátar horfnir úr sýrlenskri flotastöð
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Nettó og Bónus í jólabókaverðstríði — mikill verðmunur á spilum, bókum og Legó

Nettó og Bónus í jólabókaverðstríði — mikill verðmunur á spilum, bókum og Legó
Fréttir
Í gær

Þetta eru helstu leikendurnir í baráttunni um framtíð Sýrlands

Þetta eru helstu leikendurnir í baráttunni um framtíð Sýrlands
Fréttir
Í gær

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans
Fréttir
Í gær

Óprúttnir netglæpamenn herja á ferðaþjónustufyrirtæki – „Þeir kaupa þjónustu með fölskum kortanúmerum“

Óprúttnir netglæpamenn herja á ferðaþjónustufyrirtæki – „Þeir kaupa þjónustu með fölskum kortanúmerum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir