fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Lilja segir að stöðva þurfi þessa slæmu þróun – „Þar er ekki í boði að skila auðu“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 5. júlí 2023 16:30

Lilja Alfreðsdóttir Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fá málefni eru mér jafn hugleikin og mikilvægi íslenskunnar, hún er grunnur alls sem við gerum og stöndum fyrir. Kunnátta og færni í tungumálinu ákvarða oft þau tækifæri og framgang sem börn og ungmenni njóta til framtíðar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. 

Lilja segir í skoðanapistli á Vísi að í hún hafi sett málefni íslenskunnar í öndvegi í ráðherratíð sinni og leitast við að auka samvinnu og samstöðu um aðgerðir sem stuðla að verndun og þróun tungumálsins. Íslenskan sé ekkert venjulegt málefni og þróun hennar verði ekki stýrt með ríkisafskiptum. Tungumál séu í senn verk okkar allra og verkfæri, þau hverfast ekki um afskipti – heldur samskipti.

„Ef þér er almennt sama hvort þjónustan sem þú færð er á íslensku eða ensku eru allar líkur á að hún verði til framtíðar á ensku. Við skulum samt hafa það á hreinu að ensk tunga er ekki óvinur íslenskunnar, heldur er það doðinn og andvaraleysið sem skapa ógn við samtíð og framtíð tungumálsins okkar.“

Segir Lilja okkur þurfa alvöru viðhorfsbreytingu gagnvart tungumálinu okkar. „Við verðum í sameiningu að vinda ofan af þeim doða og misskildu þjónustulund sem hefur orðið til þess að enska er álitin sjálfsagt mál svo víða í samfélaginu. Þeim fjölgar stöðugt sem stíga fram og andæfa þessari þróun; benda á fáránleika þess að auglýsingum og markaðsefni á ensku sé beint að íslenskumælandi neytendum, að þjónusta sé ekki í boði á íslensku og að almannarými séu uppfull af skilaboðum á ensku og íslenskan sé þar í öðru sæti.

Þetta er líka slæm þróun, sem þarf að stöðva. Þessi framvinda á sér ýmsar skýringar og afsakanir en að mínu mati kristallast í henni blanda af metnaðar- og andvaraleysi varðandi stöðu íslenskunnar. Og mögulega smá Indriði líka, hver á annars að passa upp á íslenskuna? Á ég að gera það?“

Hvað gerist ef við hættum að hugsa á íslensku?

Lilja bendir á að tungumál okkar geymir sjálfsskilning okkar og sögu. Okkur hafi verið treyst fyrir einstakri menningararfleifð og við verðum að standa okkur betur í að varðveita hana og færa áfram til komandi kynslóða. Sá þráður er að hennar sögn einna skýrastur í bókmenntunum – frá norrænu goðafræðinni til Njálu og Hávamála – að Ferðalokum, Svartfugli, Sjálfstæðu fólki, Sálminum um blómið, Karitas án titils, Kleifarvatni, Mánasteini, Draumalandinu, Sextíu kílóum af sólskini og Hamingju þessa heims. 

„Við eigum fjársjóð af sögum og heimsmynd í þessu tungumáli. Hefur þú leitt hugann að því hvernig sú heimsmynd liti út ef við hættum að hugsa á íslensku?“

Þróun sem við getum snúið við

Lilja segir stöðuna flókna en ekki alslæma. Fjölmargir einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar til þess að auka veg tungumálsins og árétta mikilvægi þess. „Undanfarin misseri hef ég átt ótal uppbyggileg samtöl við fólk úr atvinnulífinu, skólasamfélaginu, stjórnkerfinu, rannsakendur og frumkvöðla um áskoranir íslenskunnar og leiðir til úrbóta – þetta er fólk af ólíkum uppruna og á mismunandi aldri en rauði þráðurinn er sá sami – það er samfélagslegt verkefni að tryggja framtíð íslenskunnar og þar er ekki í boði að skila auðu.“

Lilja segist vonast til góðrar samvinnu við atvinnulíf, sveitarfélög og þriðja geirann í því verkefni sem ber vinnuheitið „Íslenska er sjálfsagt mál“ en markmið þess er að auka sýni- og heyranleika íslensku í almannarýmum í samvinnu atvinnulífs og stjórnvalda. Fyrirtæki í landinu eru afar mikilvæg í því samhengi segir Lilja og því er ein þeirra 18 aðgerða í þágu tungumálsins sem kynntar eru til umsagna í Samráðsgátt sérstaklega miðuð að þeim.

Skoðanapistil Lilju má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

„Forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks“

„Forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“
Fréttir
Í gær

Öskrin í konunni reyndust á „heldur jákvæðari nótum“ en óttast var

Öskrin í konunni reyndust á „heldur jákvæðari nótum“ en óttast var
Fréttir
Í gær

Zelenskyy segir að hægt sé að senda erlendar hersveitir til Úkraínu áður en af NATÓ-aðild verður

Zelenskyy segir að hægt sé að senda erlendar hersveitir til Úkraínu áður en af NATÓ-aðild verður
Fréttir
Í gær

Ákeyrsla á bílastæði eyðilagði framtíðina sem hún stefndi að

Ákeyrsla á bílastæði eyðilagði framtíðina sem hún stefndi að
Fréttir
Í gær

Sigurður Fannar ákærður fyrir morð á dóttur sinni

Sigurður Fannar ákærður fyrir morð á dóttur sinni