En svo virðist sem hinu góða samstarfi þeirra ljúki þar því leiðtogar þessara þriggja hópa, Yevgeny Prigozhin eigandi Wagner, Ramsan Kadyrov leiðtogi Téténíu
og Vladímír Pútín Rússlandsforseti, eru ekki alltaf ánægðir með hver annan.
Þetta kemur fram í nýlegu mati bandarísku hugveitunnar Institute for the Study of War (ISW) um gang stríðsins í Úkraínu.
Í þessu mati kemur meðal annars fram að Prigozhin sé að reyna að auka völd sín í Rússlandi með því að reyna að tryggja Wagner-hópnum stöðuna sem úrvalshermenn landsins. Hann hefur ítrekað gagnrýnt rússneska varnarmálaráðuneytið og herinn í þeirri viðleitni sinni að láta Wagner-hópinn taka yfir fleiri þætti stríðsrekstursins.
ISW segir að Prigozhin hafi reynt að fá Kadyrov og hermenn hans til að snúast gegn rússneska varnarmálaráðuneytinu og þar með stjórn Pútíns.
Þessu hefur Kadyrov hafnað að sögn ISW því hann sjái mun meiri ávinning af að halda núverandi stöðu sinni sem leiðtogi Téténíu en að mynda bandalag með Prigozhin í deilum við Pútín.
Flemming Splidsboel, sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá dönsku hugveitunni DIIS, sagði í samtali við TV2 að svo virðist sem einhverskonar uppgjör eigi sér stað á milli Kadyrov og Prigozhin. Þeir hafi haft sömu stefnu en nú geti verið að Kadyrov telji að Prigozhin hafi gengið of langt.
ISW segir að Prigozhin ætli nú að reyna að fá rússneska öfgaþjóðernissinna til liðs við Wagner í áróðursstríði hans gegn rússneska hernum.
Splidsboel sagði að orðrómar hafi verið um að Prigozhin hafi verið ýtt til hliðar og hafi beðið ákveðinn skaða. Hann sagðist ekki telja að hann sé búinn að vera eins og sumir hafa haldið fram.