fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

„Afstaða kirkjunnar í heiminum til samkynhneigðar er ein af stóru syndum hennar í samtímanum“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 20. febrúar 2023 13:29

Sigurvin Lárus. Mynd/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurvin Lárus Jónsson, prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega afstöðu þeirra innan kristinnar kirkju sem fordæma samkynhneigð og segja það kynda undir ofsóknir og ofbeldi á hendur hinsegin fólki.

„Það er sannfæring mín að sá boðskapur kristinna manna í samtímanum að samkynhneigð sé synd, sé valdbeiting og mannréttindabrot. Sú afstaða réttlætir og veldur gríðarlegri þjáningu í heiminum og kyndir undir ofsóknir og ofbeldi á hendur hinsegin fólki. Í ljósi sögunnar mun hún flokkast með stuðningi kirkna við þrælahald, kynþátta-aðgreiningu (e. apartheid) og kvenfyrirlitningu,“ skrifar hann í pistli á Vísi.

Kristin kirkja er fjölbreytt

Sigurvin segir að það vera bæði styrkleika og veikleika í senn að kristin kirkja í heiminum sé margbreytileg og fjölbreytt.

„Fjölbreytileiki kirkjunnar verður til þess að fleiri geta fundið sér stað í samfélagi lærisveina Jesú og veikleiki hennar er sá að afstaða kirkna til trúarlegra og siðferðilegra mála getur tekið á sig myndir öfganna á milli,“ segir hann.

„Afstaða kristinnar kirkju til hinsegin fólks er jafnframt fjölbreytt en hluti kristinna kirkjudeilda álíta samkynhneigð synd. Sú afstaða er í flestum tilfellum sett fram með þeim rökum að Biblían fordæmi samkynhneigð og að Guð elski syndarann, í þessu tilfelli hinsegin fólk, en fordæmi eða hati syndina, sem eru hinsegin ástir.“

Textar Biblíunnar sem eru notaðir til að fordæma samkynhneigð

Sigurvin segir að þeir textar Biblíunnar sem eru notaðir til að fordæma samkynhneigð séu annarsvegar úr Mósebókum Gamla testamentisins og hins vegar úr bréfum Páls postula.

„Þá texta Gamla testmentisins sem notaðir eru til að réttlæta andúð á samkynhneigð er að finna í lagabálkum gyðingdóms en mörg þeirra laga eru okkur fullkomlega framandi og hafa aldrei verið haldin í heiðri í kristinni hefð. Það vægi sem að þessir textar Mósebóka hafa fengið til að fordæma hinsegin fólk er nýtilkomið og sprettur af þörfinni til að upphefja gagnkynhneigðarhyggju á kostnað þeirra sem ekki passa inn í mótið.

Pálsbréfin standa okkur nær en afstaða Páls til samkynhneigðar í Rómverjabréfi og Fyrra Korintubréfi er langt frá því augljós. Páll fordæmir kynhegðun grísk-rómverskrar menningar, meðal annars drengjaást (pederastíu) og vændi karla, en gerir ekki ráð fyrir að um jafningja ástarsamband tveggja einstaklinga af sama kyni geti verið að ræða.“

Sigurvin segir að íslenskt samfélag megi vera stolt fyrir að hafa stofnað Samtökin 78 fyrir 44 árum síðan. „Í dag tekur þriðjungur þjóðarinnar þátt í hátíðarhöldum Hinsegin daga og það er mikill minnihluti sem heldur uppi eða styður fordóma í þeirra garð. Sá minnihluti talar því miður oft í nafni Jesú Krists og réttlætir sig á grundvelli þeirrar guðfræði að Guð elski syndarann en hati syndina,“ segir hann.

„Það er ekki synd að elska“

„Það er ekki synd að elska en það er synd að fordæma ást annarra og slík fordæming veldur og réttlætir ofbeldi gegn hinsegin fólki,“ segir Sigurvin og heldur áfram:

„Í Jóhannesarbréfi er því haldið fram að boðorð kærleikans sé öllum boðorðum æðri og að sá sem þykist tala af kærleika en hefur hatur í huga geti ekki staðið í ljósinu. Þar segir: „Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er ennþá í myrkrinu. Sá sem elskar bróður sinn býr í ljósinu og í honum er ekkert er leitt geti hann til falls.“

Þegar kemur að grundvallar mannréttindum má engar málamiðlanir gera og afstaða kirkjunnar í heiminum til samkynhneigðar er ein af stóru syndum hennar í samtímanum.“

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð“

Að lokum vísar Sigurvin í orð Desmond Tutu, erkibiskups í Suður-Afríku.

„Hann var einn verndara alþjóðlegs átaks sem að Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu Þjóðanna hefur sett á laggirnar undir yfirskriftinni Free & Equal, eða Frjáls og jöfn. Átakinu er ætlað að berjast gegn fordómum og lagasetningum sem mismuna hinsegin fólki um allan heim. Á stofnfundinum líkti hann afstöðu kristinna til samkynhneigðar við þá sem á sínum tíma vörðu aðskilnaðarstefnu svartra í Suður-Afríku og um þá guðfræði segir hann:

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð og ef mér yrði boðin vist á hómófóbískum himnum myndi ég afþakka.““

Lestu pistilinn í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Börn Lúðvíks Péturssonar krefjast úrskurðar um að hann sé látinn

Börn Lúðvíks Péturssonar krefjast úrskurðar um að hann sé látinn
Fréttir
Í gær

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks