fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Sara Dögg um það sem hún kallar Helvítisgjá Garðabæjar – „Hér fer einfaldlega ekki saman hljóð og mynd“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 19. febrúar 2023 13:00

Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Viðreisnar Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Viðreisnar í Garðabæ, skýtur föstu skoti á Garðbæinga í pistli sínum á Visir.is. Segir hún skugga falla á niðurstöður nýrrar ánægjukönnunar þar sem Garðabær mælist hæst allra sveitarfélaga í ánægju með búsetu með einkunnina 4.3 af 5 mögulegum.

„Skugga sem tekur frá okkur í Viðreisn þá miklu gleði og stolt sem að alla jafna ætti að fylgja niðurstöðu sem þessari.“

Sara Dögg segir ánægju með þjónustu við fatlað fólk mælast 3.3 af 5 mögulegum og standa í stað milli ára.

„Enn eitt árið gengur ekkert né rekur að hífa upp ánægjuna. Á sama tíma og allir aðrir þjónustuþættir hækka á milli ára. Allir nema einn. Þjónusta við fatlað fólk. Þrátt fyrir endurtekna möntru meirihlutans ár eftir ár um að þjónusta við fatlað fólk sé mjög góð. Allt sé gert til þess að mæta þjónustuþörf fatlaðs fólks,“ segir Sara Dögg og spyr hvernig standi á þessu.

„Hér fer einfaldlega ekki saman hljóð og mynd. Getur verið að mat meirihlutans á því hvað sé mjög góð þjónusta rými alls ekki við þá þjónustuþörf sem fatlað fólk á rétt á og hefur þörf fyrir? Getur verið að hér sé um einhvers konar ofmat að ræða?“

Hefur alla burði til að gera betur

Sara Dögg segir Garðabæ hafa alla burði til að gera betur og staðan eins og hún er sé einfaldlega ekki boðleg í sveitarfélagi þar sem hægt er að gera eins vel og niðurstöður könnunar sýnir í öllum öðrum þjónustuþáttum. Segir hún Viðreisn hafa nýlega lagt fram

tillögu um að framkvæmd frumkvæðisskyldu sveitarfélagsins gagnvart fötluðu fólki yrði rýnd og tekin út. Tillaga sem kemur sér afar vel í ljósi þessarar niðurstöðu að sögn Söru Daggar.

„Garðabær hefur alla burði til þess að gera betur. Hér þarf einfaldlega kjark og vilja til. Sveitarfélagið stendur vel fjárhagslega og er því til háborinnar skammar að hér takist ekki betur til. Við í Viðreisn höfum ítrekað bent á þessa skökku stöðu. Skekkjuna þurfum við að finna og laga. Í Garðabæ viljum við að allir íbúar séu ánægðir. Fatlaðir jafnt sem ófatlaðir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Harmleikurinn í Kiðjabergi – Gediminas varð Victoras að bana

Harmleikurinn í Kiðjabergi – Gediminas varð Victoras að bana
Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Katrín upplifði sorg eftir Alþingiskosningarnar

Katrín upplifði sorg eftir Alþingiskosningarnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útför Sólons fór fram í dag – „Mikið er ég reið og sorgmædd yfir aðgerðarleysi Icelandair í kjölfar andláts þíns“

Útför Sólons fór fram í dag – „Mikið er ég reið og sorgmædd yfir aðgerðarleysi Icelandair í kjölfar andláts þíns“