Maður hefur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. mars næstkomandi en Landsréttur staðfesti í gær framlengdan gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli hans. Maðurinn er grunaður um margvísleg afbrot gegn eiginkonu sinni, meðal annars að hafa þverbrotið nálgunarbann gagnvart henni, t.d. með því að sitja um heimili hennar í bíl sínum og með því að veita henni eftirför.
Maðurinn er einnig grunaður um að hafa villt á sér heimildir er hann reyndi að nálgast sjúkragögn um eiginkonu sína á heilsugæslustöð. Þóttist hann vera starfsmaður Ríkissaksóknara og þyrfti á skjölunum að halda vegna rannsóknar. Er þetta brot á 116. grein almennra hegningarlaga, sem hljóðar svo:
„Hver, sem tekur sér eitthvert opinbert vald, sem hann ekki hefur, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 1 ári] 1) eða, ef miklar sakir eru, fangelsi allt að 2 árum.“
Afar mörg meint brot mannsins frá síðasta ári eru til rannsóknar en flest varða þau brot á nálgunarbanni. Af þeim langa lista að dæma virðist konan hafa verið undir stöðugum ofsóknum mannsins.
Í rökstuðningi Lögreglustjórans í Reykjavík, sem krafðist gæsluvarðhalds, segir að hætta sé á því að maðurin beiti konuna lífshættulegu ofbeldi:
„Metið er sem svo að ráðandi áhættuþáttur í ofbeldishegðun X sé hugsanleg geðræn veikindi, ofbeldisfullt viðhorf og yfirvofandi skilnaður við brotaþola. Áhættan er metin vera viðvarandi, enda hefur ofbeldishegðun X viðgengist í þónokkurn tíma núna, meðal annars með ítrekuðum brotum gegn því nálgunarbanni sem hann hefur þurft að sæta. X hefur ekki sýnt neinn vilja til betrunar og ekki sýnt neina iðrun brota sinna hjá lögreglu.“