Svona hefst færsla sem fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason birtir á Facebook-síðu sinni í dag en um er að ræða svar við pistli Jóns Trausta, blaðamanns og framkvæmdastjóra Heimildarinnar. Jón Trausti sagði meðal annars í pistlinum, sem birt var á Heimildinni í gær, að Frosti væri að beita grínistann Stefán Ingvar Vigfússon afmennskun. Í hlaðvarpsþætti sínum Harmageddon hafði Frosti kallað Stefán „hökulausan maðk“ og talað um að hann hefði „mjög gott af því“ að fá á kjaftinn.
Hægt er að lesa pistil Jóns Trausta í heild sinni á Heimildinni.
Frosti svarar fyrir sig í færslunni sem hann birti í dag. „Þar [í pistlinum] kemur hann með alveg eiturskarpa greiningu á því hvernig svar mitt við endurteknu netníði hafi ekkert með það að gera að bera hönd yfir höfuð sér, heldur sé eingöngu einhverskonar misnotkun á valdi mínu til að afmennska greyið grínistann sem vildi einungis fá að stunda netníð í friði.“
Þá segir Frosti að Stefán hafi skrifað um sig „óteljandi færslur“ á samfélagsmiðlum. „Þar sem hann veittist að persónu minni og mannorði áður en ég leyfði mér að svara honum í fyrsta skipti núna fyrr í þessari viku,“ segir hann.
„Samkvæmt Jóni Trausta gerðist ég svo ósmekklegur að sækja þar í smiðju Adolfs nokkurs Þýskalandskanzlara sem notaði þekktar aðferðir til að grafa undan tilverurétti fólks með því að uppnefna það maðka í ræðum og riti. Ekki nóg með það heldur minna aðferðir mínar líka á undanfara þjóðarmorðanna í Rúanda og ofsóknanna gegn Róhingjum í Myanmar. Geri aðrir betur.“
Frosti segir að Jón Trausti „stressi sig ekki jafnmikið á afmennskunni sem átti sér stað í hina áttina.“ Hann segir að gefið hafi verið út skotveiðileyfi á sig þegar fyrrverandi kærasta hans steig fram og sagði frá meintu andlegu ofbeldi af hans hálfu.
„Ég er einn þeirra sem hef að undanförnu mátt sæta því hlutskipti að vera andlag einhliða frásagnar fyrrverandi maka í sérstökum hlaðvarpsþætti sem gerir út á slíkar frásagnir. Slík hlaðvörp hafi notið mikilla vinsælda í íslensku samfélagi síðastliðin misseri og þykja mikið þjóðþrifaverk.“
Frosti segist ekki hafa tjáð sig um ásakanirnar sem á sig voru bornar í hlaðvarpsþættinum Eigin konur að öðru leyti en að biðjast afsökunar á tölvupóstum sem hann skrifaði í kjölfar sambandsslitanna sem áttu sér stað fyrir rúmum 10 árum. Þá segist hann hafa reynt að ná sáttum við sína fyrrverandi í gegnum fagaðila en að það hafi ekki gengið. Einnig segir hann að frásögn hennar hafi ekki verið „nema að litlum hluta rétt.“
„Ég hef ekki áhuga á að munnhöggvast við fyrrverandi kærustu á opinberum vettvangi og hef frekar farið þá leið að biðjast afsökunnar á mínum hlut og leita sátta í gegnum fagaðila. Þeim sáttaumleitunum hefur reyndar öllum verið svarað með skætingi enda algjör óþarfi að láta góða opinbera smánunarherferð fara til spillis. Mér hefur hingað til nægt að vita til þess að þeir sem þekkja málið vita að frásögn fyrrverandi kærustu minnar var ekki nema að litlum hluta rétt. En það er önnur saga.“
Að lokum skýtur Frosti á Jón Trausta og Heimildina fyrir að vera í samstarfi með Eddu Falak, sem stýrir hlaðvarpinu Eigin konur. Stundin hóf samstarf með Eddu á síðasta ári en Stundin sameinaðist Kjarnanum í Heimildina í upphafi þessa árs.
„Það sem síðan er kannski kaldhæðnislegast í þessu öllu er að Jón Trausti Reynisson fer sjálfur fyrir fjölmiðli sem veitir þeirri manneskju skjól sem farið hefur fremst í flokki opinberra smánunarherferða, í hlaðvarpi þar sem þess er kyrfilega gætt að sjónarmið þeirra sem um er fjallað fá aldrei að koma fram.“
Frosti segist auðvitað vona að sér verði fyrirgefið að „fylgja ekki alltaf hjörðinni“ en að hann ætli ekki að biðjast afsökunar á því að hafa „staðið upp gegn ofbeldi netníðinga.“