Stórsöngvarinn Einar Júlíusson lést í nótt í faðmi fjölskyldu sinnar. Einar var 78 ára gamall.
Einar söng með ýmsum hljómsveitum á borð við Saxon kvintett, H.J kvartettinum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar. Hann gerðist svo fyrsti söngvari hljómsveitarinnar Hljómar frá Keflavík. Seinna meir söng hann með Pónik í rúmlega tvo áratugi.
Í tilkynningu frá fjölskyldu Einars segir:
„Eitt helsta átrúnaðargoð unga fólksins á 7. áratugarins og stórsöngvarinn Einar Júlíusson, lést í faðmi fjölskyldunnar síðastliðna nótt. Einar fæddist í Keflavík 20. ágúst 1944, hann bjó og starfaði þar alla tíð. Einar byrjaði á barnsaldri að syngja, hann var einn af stofnendum Hljóma og var fyrsti söngvari þeirra frægu hljómsveitar.
Hann átti síðan farsælan 23 ára ferill með hljómsveitinni „Pónik og Einar“. Á síðari árum lagði hann áherslu á einsöng, þar sem hann söng við ýmsar athafnir. Einar söng á hljómplötu með Ellý Vilhjálmsdóttur og varð sú plata mjög vinsæll. Fræg lög sem Einar söng voru til dæmis lögin „Brúnaljósin brúnu“, „Léttur í Lundu“ og „Viltu dansa“.“