Þrír ökumenn voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Í Miðborginni var tilkynnt um mikinn hávaða. Það reyndust vera börn að spila körfubolta og fór það í taugarnar á nágrönnum að því er segir í dagbók lögreglunnar.
Annars var kvöld- og næturvaktin með rólegra móti hjá lögreglunni.