Landsréttur mildaði á föstudaginn dóm yfir Kristófer Erni Sigurðarsyni, fyrir brennu, úr tveimur og hálfs árs fangelsi niður í tvö ár og þrjá mánuði.
Kristófer var sakfelldur fyrir að hafa kveikt í húsinu Byrgi í Sandgerðisbót á Akureyri í nóvember árið 2019. Hann játaði verknaðinn í lögregluyfirheyrslu morguninn eftir brunann, sem var um nóttina. Kristófer, sem bjó á neðri hæð hússins, kveikti í með því að skilja brauðrist eftir í gangi og setja yfir hana viskastykki. Síðan gekk hann út úr húsinu.
Um hálftvöleytið um nóttina var slökkvilið kallað á vettvang og þá voru allir íbúar efri hæðarinnar flúnir út úr húsi. Þeir höfðu orðið eldsins varir og hringt í slökkviliðið. Í texta héraðsdóms í málinu sagði meðal annars:
„Er ákærða gefin að sök brenna, „með því að hafa aðfararnótt miðvikudagsins 6. nóvember 2019, í íbúðarhúsnæðinu […], þar sem ákærði bjó á jarðhæð, kveikt á brauðrist sem staðsett var frammi á gangi við eldhúsið og lagt viskastykki yfir hana áður en hann gekk út úr húsnæðinu, en með athæfi sínu olli ákærði eldsvoða sem hafði í för með sér að íbúar á efri hæð húsnæðisins voru í bersýnilegum lífsháska og augljós hætta var á yfirgripsmikilli eyðingu húsnæðisins hefði eldurinn náð að breiðast enn frekar út, en íbúi á efri hæð hússins varð eldsins var og gerði slökkviliði viðvart sem réð niðurlögum eldsins.“
Kristófer neitaði sök fyrir dómi en hann hafði áður játað á sig glæpinn við lögreglu. Sekt hans var staðfest fyrir Landsrétti en refsingin lækkuð, sem fyrr segir. Dóma héraðsdóms og Landsréttar í málinu má lesa hér.