fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Ólga í Búðardal eftir að Samkaup ráku Rebeccu – „Hann sagði að ég talaði of mikið við viðskiptavini“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 1. nóvember 2022 10:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Afsakaðu, röddin er farin, ég er búin að vera að tala stanslaust í símann,“ segir hás Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld, dönsk kona sem býr á Hólum í Hvammssveit, hefur búið á Íslandi í tvo áratugi og starfað í matvöruverslun Samkaupa á Búðardal í yfir áratug, þar til henni var sagt upp fyrirvaralaust í gær.

Síminn hefur ekki stöðvað hjá Rebeccu, fólk byrjaði strax að hringja eftir að hún var komin heim og hafði birt færslu um málið á Facebook og hún segist hafa verið í símanum til kl. 2 í nótt. Fjölmargir hafa tjáð sig um málið á Facebook og mótmælapóstum vegna brottrekstursins rignir yfir forstjóra Samkaupa.

„Hann sagði að ég talaði of mikið við viðskiptavini,“ segir Rebecca um skýringu verslunarstjóra Krambúðarinnar á brottrekstrinum. Viðskiptavinirnir virðast hins vegar ekki vera sammála þessu og margir hafa stigið fram, Rebeccu til stuðnings.

„Rebecca er frábær í alla staði, ávallt glaðvær og með mikla þjónustulund. Það er alveg ljóst að fólk er í sjokki eftir þessar fréttir,“ sagði Þórður Már Sigfússon, brottfluttur íbúi.

„Nú er um að gera að allir sem eru reiðir yfir framkomu Samkaupa í garð Rebecca Cathrine Kaad að senda email á Gunnar Egil forstjóra samkaupa og kvarta yfir þessari ömurlegu framkomu í hennar garð. Emailið er gunnar@samkaup.is,“ skrifar einn íbúi á Facebook-síðu Rebeccu.

Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið er sveitarstjórnarmaðurinn Skúli Hreinn Guðbjörnsson, sem vill huga að þeim möguleika að fara í samkeppni við Samkaup í Búðardal og ráða Rebbeccu þá í nýja verslun. Í samtali við DV segir Skúli að hugarflugsfundur verði um málið í kvöld og möguleiki sé á því að áform um nýja verslun á staðnum verði tilkynnt á næstunni.

Rekin í hrekkjavökubúningi

„Ég hafði verið beðin um að mæta í Halloween-búningi en svo þegar ég mæti er ég eina manneskjan í búningi. Verslunarstjórinn og mannsauðsstjóri frá Samkaupum kalla mig til sín upp úr klukkan átta og tilkynna mér þetta. Ég sat þarna eins og hálfviti með blóð í framan og mér sagt að ég sé rekin,“ segir Rebecca.

„Mannauðsstjórinn sagði mér að þetta væri vegna skipulagsbreytinga en svo bætti verslunarstjórinn við: „Og svo talarðu of mikið við viðskiptavini eins og ég var búinn að segja þér og þú ert ekki búin að breyta því.“ Ef svo er þá er ég eitthvað búin að misskilja þetta síðustu 12-13 ár,“ segir Rebecca sem þrátt fyrir áfallið ber sig vel og var hress og kát er DV ræddi við hana. Hún er líka þekkt fyrir glaðlegt viðmót.

Síðasta sumar var Rebecca valin Dalamaður ársins á Bæjarhátíðinni í Búðardal. Rebecca er annálaður dýravinur en hún rekur dálítinn húsdýragarð á Hólum. Fékk hún viðurkenninguna meðal annars vegna þess.

Rebecca segist ekkert vera farin að velta fyrir sér hvað taki við, hvort hún geti fundið annað starf. „Það eru ekki mörg störf í boði hér en ég er ekkert farin að hugsa út í þetta.“

Mögulega mun ákvörðun um stofnun nýrrar verslunar á sveitinni svara þeirri spurningu hvað Rebecca tekur sér næst fyrir hendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill tjáir sig um áformin umdeildu – „Hún er algjörlega forljót“

Egill tjáir sig um áformin umdeildu – „Hún er algjörlega forljót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til