fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Segir þetta vera ástæðurnar fyrir að Pútín muni ekki nota kjarnorkuvopn

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 11. október 2022 07:00

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steven Pifer, greinandi og fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, segist sannfærður um að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, „vilji ekki kjarnorkustríð“. Hann segir að Kremlverjar „vilji að Úkraína og Vesturlönd trúi að Rússland sé reiðubúið í kjarnorkustríð til að ógna þeim“.

Sky News skýrir frá þessu og hefur eftir Pifer að Pútín tali oft um kjarnorkuvopn, meira að segja þegar hann er ekki að hafa í hótunum. Hann vilji minna umheiminn á að Rússar eigi mikið af kjarnorkuvopnum.

„Þau eru sterkustu rök Rússa fyrir að vera stórveldi og Pútín og Kreml reyna að draga upp þá mynd að Rússland sé stórveldi,“ sagði hann.

Hann sagði einnig að kjarnorkuvopnaorðræða Pútíns hræði vestræna leiðtoga til að „íhuga hvað gerist ef þeir láta undan hótunum Pútíns“.

„Hann hefur lært af þessu og Vesturlönd ættu að búa sig undir fleiri kjarnorkuvopnahótanir frá Rússlandi. Sem betur fer virðast leiðtogar Bandaríkjanna og Evrópu skilja þetta,“ sagði hann og bætti við að hann telji að þrjár ástæður séu fyrir því að Pútín muni ekki nota kjarnorkuvopn.

Þær eru:

Það er ekki öruggt að beiting kjarnorkuvopna í Úkraínu muni hafa afgerandi hernaðarleg áhrif.

Bandaríska varnarmálaráðuneytið sér engin merki um að Rússar séu að gera sig líklega til að beita kjarnorkuvopnum.

Notkun kjarnorkuvopna myndi gera Kína, Indland og önnur ríki á suðurhveli afhuga Rússlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já
Fréttir
Í gær

Krefja Matvælastofnun um svör vegna umsóknar um leyfi til umfangsmikilla dýratilrauna

Krefja Matvælastofnun um svör vegna umsóknar um leyfi til umfangsmikilla dýratilrauna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“

Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar

Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan á Íslandi tók þátt í að uppræta peningaþvætti á iðnaðarskala í alþjóðlegri lögregluaðgerð

Lögreglan á Íslandi tók þátt í að uppræta peningaþvætti á iðnaðarskala í alþjóðlegri lögregluaðgerð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð