

Tveir menn sitja í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa staðið að meintum undirbúningi hryðjuverka hér á landi. Samstöðin, greinir nú frá því að þeir aðilar sem mennirnir tveir, Sindri Snær Birgisson og meintur samverkamaður, hafi hótað að valda skaða hafi nú verið kallaðir til skýrslutöku. Meðal þessara aðila séu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins.
Í frétt samstöðvarinnar segir að Sólveigu Önnu og Gunnari hafi verið sýnd samskiptin sem þau varði. Sólveig Anna hafi verið kölluð „litla kommalufsan sem vildi gera byltingu“ og hafi mennirnir því næst heitið því að drepa hana einn daginn.
Gunnari Smára hafi verið sýnd samskipti þar sem annar maðurinn var staddur á sama veitingastað og hann og barmað sér yfir að vera ekki vopnaður ásamt vangaveltum um hvaða afleiðingar það myndi hafa ef hann myndi myrða Gunnar Smára á staðnum. „Ég væri komin upp á löggustöð fyrir miðnætti“, er sá sem var á veitingastaðnum sagður hafa sagt. „Við myndum fljúga inn á þing,“ mun hinn síðan hafa sagt. Gunnar Smári segir að miðað við tímasetninguna hafi þetta verið er hann fór út að borða með 15 ára dóttur sinni.
„Auðvitað er óhugnanlegt að fá að vita að þessir menn hafi verið að smíða vopn og gæla við að taka mig af lífi fyrir pólitískar skoðanir og starf,“ er haft eftir Sólveigu Önnu. Hún bætir við að hún sé orðin dofin eftir linnulausar árásir og ásakanir undanfarinna ára og því hafi hún tekið þessu fyrst sem hverju öðru hundsbiti.
Gunnar Smári sagði í samtali við Stundina að hann hafi fengi að sjá skilaboðin í síðustu viku. Það hafi farið fram í gegnum samskiptaforritið Signal þar sem samskipti eru dulkóðuð.