
Grunur leikur á að framið hafi verið morð í Reykjavík í gær en tveir menn eru í gæsluvarðhaldi vegna líkfundar í Laugardal. Þar fannst lík konu á sextugsaldri inni í bíl. Mennirnir tveir sem eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins eru á fimmtugsaldri og að sögn lögreglu voru tengsl á milli þeirra og konunnar.
Þetta er fjórða morðmálið á Íslandi síðan í byrjun júní og svo há morðtíðni á stuttum tíma er óvenjuleg. Málin fjögur eru hins vegar ólík.
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, segir þessa háu tíðni vera áhyggjuefni.
Þann 6. júní síðastliðinn var Gylfi Bergmann Heimisson myrtur hrottalega af Magnúsi Aron Magnússyni, nágranna sínum í Barðavogi í Reykjavík.
Þann 21. ágúst var framin skotárás á Blönduósi sem leiddi til dauða Evu Hrundar Pétursdóttur. Árásarmaðurinn, Brynjar Þór Guðmundsson, lést lífið í átökum í kjölfar árásarinnar.
Aðfaranótt mánudagsins 3. október lést síðan Tómas Waagfjörð af stungusárum í átökum í heimahúsi á Ólafsfirði.
DV ræddi við Helga um þessa háu morðtíðni, sem segir of snemmt að álykta hvort hún tengist þáttum á borð við aukinn vopnaburð og aukna hörku í undirheimum:
„Þetta er há tíðni á stuttum tíma og óneitanlega áhyggjuefni. Kemur í kjölfar umræðu um vaxandi hnífaburð, aukna hörku í undirheimum og skipulagða brotastarfsemi, og spurninguna um aukinn viðbúnað lögreglu, eins og rafbyssur, í harðnandi heimi. Hvort manndrápin tengist þessum þáttum er samt enn óljóst, þau geta einnig verið af ólíkum toga.“
Helgi bendir á að við höfum áður í sögunni upplifað hrinu manndrápa og þar sem manndráp séu hér tiltölulega fátíð megi alltaf búast við sveiflum milli ára:
„Við höfum áður upplifað hrinu manndrápa, t.d. í kringum síðustu aldamót þegar manndrápin voru fimm eitt árið og fjögur annað. Ekki alls fyrir löngu voru þau fjögur eitt árið (2017). Þegar málin eru tiltölulega fá á hverju ári má alltaf búast við sveiflum. Þess vegna nauðsynlegt að skoða a.m.k. tíu ár til að sjá tíðnina á Íslandi í samanburði við aðrar þjóðir. Að jafnaði höfum við verið með um það bil tvö manndráp á ári frá aldamótum sem telst lágt í alþjóðasamanburði. Í því ljósi eru fjögur manndráp á stuttum tíma hátt hlutfall.“