fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
Fréttir

Tvísýnt ástand í skólum vegna smita

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 14. janúar 2022 08:00

Jón Viðar Matthíasson. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erfið staða er víða í skólum vegna kórónuveirufaraldursins. Í gær var tilkynnt að Seljaskóla verði lokað í dag og á mánudaginn vegna smita hjá nemendum og starfsmönnum. Einnig var ákveðið að fella frístundastarf í Seljahverfi niður sem og íþróttaæfingar barna hjá ÍR.

Morgunblaðið hefur eftir Jóni Viðari Matthíassyni, framkvæmdastjóra almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins og slökkviliðsstjóra, að staðan sé mjög tvísýn í mörgum öðrum skólum. Einnig þurfi að fylgjast vel með velferðarþjónustu sveitarfélaganna vegna útbreiðslu smita. Þetta eigi til dæmis við um sambýli og heimahjúkrun. Staðan sé metin daglega og stundum oft á dag.

Haft er eftir honum að það muni ekki koma honum á óvart ef grípa þurfi til fleiri lokana, málin hafi þróast þannig síðustu daga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gleðileg jól kæru lesendur

Gleðileg jól kæru lesendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þúsundir skólabarna heimsóttu kirkjur á aðventunni

Þúsundir skólabarna heimsóttu kirkjur á aðventunni
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Gæti farið svo að innanlandsflugi verði aflýst vegna veðurs á morgun

Gæti farið svo að innanlandsflugi verði aflýst vegna veðurs á morgun
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Martröð ferðamanns á Íslandi – Kostnaðurinn rauk upp vegna bílastæða

Martröð ferðamanns á Íslandi – Kostnaðurinn rauk upp vegna bílastæða
Fréttir
Fyrir 4 dögum
Maðurinn er fundinn