fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Netverslun landsmanna hefur náð hámarki og fer nú minnkandi

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 31. mars 2022 09:00

Úr einu vöruhúsa Amazon netverslunarinnar sem hefur fundið fyrir því að neytendur vestanhafs sætta sig ekki svo glatt við verðhækkanir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gullöld netverslunar hefur náð hámarki og að undanförnu hefur leiðin legið niður á við. Fólk er ekki hætt að kaupa á netinu en kaupir mun minna þar en á síðasta ári.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. „Netverslun náði hámarki árið 2021 en það hefur verið að hægja á netverslun síðan. Neytendur hafa ekki hætt að kaupa á netinu en það hefur hægt verulega á þróuninni frá síðasta ári,” sagði Diðrik Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri stafrænna miðla hjá MediaCom og stundakennari við Háskólann í Reykjavík, í samtali við blaðið.

Í mars á síðasta ári höfðu 48% verslað hjá netverslunum en 36% nú, þetta kemur fram í Netverslunarpúlsi Prósents.

Diðrik sagði að frá 2018 hafi þróunin snúist við hvað varðar kaup fólks á netinu. Þá höfðu um 55% verslað í netverslun og 66% höfðu verslað hjá erlendum netverslunum. Hann sagði að á síðustu mánuðum hafi hlutföllin á milli innlendrar og erlendrar netverslunar verið þau að íslensk netverslun hafi haft 70% vægi og erlend 30%.

Hann sagði að heimsfaraldurinn hafi neytt fólk til að versla meira á netinu. Að hans sögn þurfa íslenskir kaupmenn nú að finna leiðir til að nálgast þá neytendur sem séu að minnka kaupin hjá netverslunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Stefán Pálsson lýsir raunum félaga síns – „Af hverju gerum við allt svona illa?”

Stefán Pálsson lýsir raunum félaga síns – „Af hverju gerum við allt svona illa?”
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“
Fréttir
Í gær

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon