Tveir ökumenn voru handteknir í nótt. Annar er grunaður um ölvun við akstur en hinn um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Sá var einnig kærður fyrir of hraðan akstur en hann ók á 131 km/klst í Ártúnsbrekku en þar er leyfðu hámarkshraði 80 km/klst.