fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Stjórn Blaðamannafélagsins lýsir yfir óánægju með auglýsingar Samherja á mbl.is

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 2. maí 2021 16:54

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Blaðamannafélags Íslands hittist á fundi fyrir helgi til þess að ræða auglýsingu Samherja sem birtist nýlega á mbl.is. Nú hefur félagið sent frá sér tilkynningu vegna málsins en í henni er lýst yfir óánægju félagsins með auglýsinguna.

„Auglýsingin á mbl.is er tengd á myndband Samherja sem hefur þann eina tilgang að reyna að þvinga fram bann við því að Helgi Seljan fjalli um málefni fyrirtækisins og er því markmið þess að þagga niður í þeim fréttamanni sem hve mest hefur haft málefni fyrirtækisins til umfjöllunar. Slíkt er alvarleg aðför að frjálsri fjölmiðlun og gróf atlaga að fréttamanni þar sem vegið er að starfsheiðri hans,“ segir í tilkynningu félagsins.

Þá segir að auglýsingin vekji upp spurningar um þá óviðunandi stöðu sem blaðamenn eru settir í, að þurfa að vinna efni á vef sem birtir ófrægingarauglýsingar gegn starfsfélaga á öðrum miðli.

Stjórn félagsins hefur nú ákveðið að boða til pressukvölds næstkomandi fimmtudag þar sem málið verður rætt. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, nýkjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur nú sent bréf á Harald Johannessen, framkvæmdastjóra Árvakurs, og Magnús Kristjánsson fyrir hönd stjórnar félagsins. Í bréfinu lýsir stjórnin yfir óánægju félagsins og óskar jafnframt eftir því að fulltrúi Árvakurs mæti á fundinn á fmmtudaginn.

Hér fyrir neðan má sjá bréfið sem Sigríður sendi á Árvakur í heild sinni:

Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir óánægju með ákvörðun stjórnenda Ávakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, um birtingu auglýsingar frá fyrirtækinu Samherja á vef mbl.is dagana 23. – 28. apríl sl.. Auglýsingin er liður í áróðursherferð Samherja gegn Helga Seljan, fréttamanni á RÚV, og samstarfsfélögum hans, sem staðið hefur linnulaust í eitt og hálft ár.

Á fjölmiðlum eru skörp skil milli auglýsingadeilda og ritstjórna en með þessari auglýsingu var stigið yfir þá línu því herferð Samherja er ekki aðeins herferð gegn einum fréttamanni eða einni ritstjórn heldur beinist hún gegn öllum blaðamönnum og öllum ritstjórnum, þar á meðal blaðamönnum á mbl.is

Auglýsingin á mbl.is er tengd á myndband Samherja sem hefur þann eina tilgang að reyna að þvinga fram bann við því að Helgi Seljan fjalli um málefni fyrirtækisins og er því markmið þess að þagga niður í þeim fréttamanni sem hve mest hefur haft málefni fyrirtækisins til umfjöllunar. Slíkt er alvarleg aðför að frjálsri fjölmiðlun og gróf atlaga að fréttamanni þar sem vegið er að starfsheiðri hans. Aukinheldur er auglýsingin liður í ófrægingarherferð Samherja gegn Helga Seljan og samstarfsfélögum hans þar sem því er margítrekað ranglega haldið fram að vinnubrögðum hafi verið ábótavant við gerð frétta um fyrirtækið og stjórnendur þess.

Þá bendum við jafnframt á siðareglur SÍA um auglýsingagerð og markaðsskilaboð. Í þeim segir í 12. grein: „Í auglýsingum má ekki hallmæla neinum einstaklingi eða hópi einstaklinga, fyrirtæki, […] með það fyrir augum að kalla fram opinberlega fyrirlitningu eða hæðni.“

Birting auglýsingarinnar á mbl.is vekur ennfremur upp spurningar um stöðu blaðamanna sem starfa á mbl.is og hafa í sínum störfum ætíð í heiðri siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Í þeim segir meðal annars, í 1. grein, að „blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starfi blaðamanns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.“ Markmið og inntak auglýsingarinnar setur blaðamenn mbl.is í óviðunandi stöðu því þeir þurfa að sitja undir því að efni sem þeir skrifa, jafnvel undir nafni, birtist samhliða auglýsingu Samherja.

Stjórn Blaðamannafélag Íslands fer þess því á leit við stjórnendur Árvakurs að þeir taki tillit til þeirra sjónarmiða sem hér eru talin upp, komi sú staða upp aftur að auglýsandi óskar eftir birtingu auglýsingar þar sem vegið er að starfsheiðri fréttamanns eða fréttamanna. Ennfremur óskar félagið eftir því að fulltrúi fyrirtækisins mæti á umræðufund með félagsmönnum sem haldinn verður á fimmtudagskvöld í næstu viku, þar sem umræðuefnið er meðal annars siðferðileg álitaefni í tengslum við birtingu auglýsinga í íslenskum miðlum og ábyrgð fjölmiðla.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem mál tengd Samherja koma á borð stjórnar Blaðamannafélags Íslands. Félagið sendi frá sér ályktun síðasta sumar enda eru fjölmiðlar hryggjarstykkið í lýðræðislegri umræðu og þegar að þeim er vegið með órökstuddum dylgjum er vegið að tjáningarfrelsinu sjálfu og gerð tilraun til þess að grafa undan einu mikilvægasta hlutverki blaðamennskunnar, aðhaldshlutverkinu.

Fyrir hönd stjórnar Blaðamannafélags Íslands,
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu