fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Fréttir

Manndrápið í Rauðagerði – Úrskurðaður í gæsluvarðhald

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. febrúar 2021 04:47

Frá Rauðagerði. Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fertugsaldri var í gærkvöldi úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 19. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um miðnætti á laugardaginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Eins og fram hefur komið í fréttum var karlmaður á fertugsaldri skotinn til bana við heimili sitt í Rauðagerði um miðnætti á laugardaginn. Karlmaður, einnig á fertugsaldri, var handtekinn aðfaranótt sunnudags, grunaður um að hafa skotið manninn. Báðir mennirnir eru erlendir ríkisborgarar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lítið vilja tjá sig um málið annað en að rannsókn þess sé algjört forgangsverkefni.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Tveir ungir til Arsenal
Fréttir
Í gær

Daníel Örn er á batavegi eftir fólskulega og tilefnislausa líkamsárás – „Einbeittur brotavilji og ekkert annað“

Daníel Örn er á batavegi eftir fólskulega og tilefnislausa líkamsárás – „Einbeittur brotavilji og ekkert annað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Valentin fékk þungan dóm

Valentin fékk þungan dóm
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir nýjan Landspítala klúður sem enginn þori að ræða – „Þögn er hættuleg“

Segir nýjan Landspítala klúður sem enginn þori að ræða – „Þögn er hættuleg“