fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“

Fókus
Föstudaginn 20. mars 2026 19:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú standa yfir sýningar í Borgarleikhúsinu á gamansöngleiknum Þetta er Laddi þar sem kafað er ofan í húmorinn sem hefur verið samofinn húmori íslensku þjóðarinnar í tæplega hálfa öld. Gestir fá að skyggnast inn í kollinn á Ladda sjálfum, uppruna gamalkunnra persóna og þróun íslensks gríns.

Óvænt uppákoma átti sér stað á sýningunni í gær þegar leikhúsgestur stóð á fætur, stöðvaði sýninguna og ákvað að kenna leikurum réttu taktana. Leikstjórinn Ólafur Egilsson greindi frá atvikinu á Facebook en hér var um leynigest að ræða sem sló heldur betur í gegn.

„Við fengum einhvern alskemmtilegasta leynigest heims í heimsókn á „Þetta er Laddi“ í gærkvöldi.

Það var engin önnur en Edda „F-ing“ Björgvins sem mætti til þess að leiðrétta örfá atriði sem betur máttu fara í tengslum við túlkun okkar á ódauðlegum rullum Eddu á borð við „Láglaunakonuna“ og „Sænsku hjúkkuna“.“

000

Edda stöðvaði sýninguna með því að standa upp og hrópa NEI. Síðan fór hún upp á svið og spurði hvort leikarar og viðstaddir vissu ekki hver hún væri. „Ég er Edda fokking Björgvins.“

Síðan, alveg óvænt, vildi svo vel til að Edda var með hárkollu á sér og gat því skellt sér í hlutverk láglaunakonunnar frægu og sýnt réttu taktana.

Borgarleikhúsið hefur birt myndband um leynigestinn þar sem má sjá atvikið.

„Það er náttúrulega ekki hægt að þú komir svona og ryðjist inn á sýninguna bara svona og fokkir öllu upp,“ segir Laddi við Eddu eftir sýninguna. Edda sagðist bara hafa þurft að kenna leikurunum. Laddi tók það þá fram: „Það hefði kannski verið betra ef þú hefðir komið fyrr, svona áður en, og kennt þeim.“

„Það var enginn sem bauð mér það,“ sagði Edda og bætti svo við að hún hafi bara aðeins þurft að leiðrétta túlkun leikarans á hennar ódauðlegu hlutverkum. Laddi sagði þá: „Ókei, en þú kemur ekki á næstu sýningu. “

Edda vildi þó engu lofa.

@borgarleikhusid Edda Björgvins ruddist upp á Stóra sviðið í gær og sýndi leikhópnum í Þetta er Laddi hvernig þetta er gert 😮‍🔥 #leikhus #fyp ♬ original sound – Borgarleikhúsið

 

Fyrir þá sem þurfa smá upprifjun þá má hér sjá Eddu í hlutverki láglaunakonunnar í áramótaskaupinu frá árinu 1984.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld