Kanadíska riddaralögreglan gefið út ákæru á hendur hinum 61 árs gamla Dr. Wanping Zheng sem búsettur er í Quebec-héraði fyrir trúnaðarbrot [e. breach of trust]. Er honum gefið að sök að hafa misnotað stöðu sína sem sérfræðingur hjá kanadísku geimferðarstofnuninni til þess að ná samningum á Íslandi fyrir hönd hins kínverska fyrirtækis Spacety. Ekki liggur fyrir hverskyns samningarnir eru á þessari stundu.
Spacety eitt fyrsta kínverska einkafyrirtækið í tengslum við geimiðnaðinn en það sérhæfir sig í þjónustu við gervihnetti sem og hönnun og smíði smáhnatta sem taka myndir í hárri upplausn. Það var stofnað árið 2016 en þremur árum síðar, árið 2019 flutti fyrirtækið höfuðstöðvar sínar til Lúxemborg.Íslandsvinur ákærður í Kanada.
Í frétt kanadíska ríkisútvarpsins kemur fram að hið meinta brot Zheng, sem notar iðulega fornafnið James, er sagt hafa átt sér stað árið 2018 þegar hann starfaði fyrir kanadísku geimferðastofnunina en málefni hennar heyra undir þjóðaröryggismál ytra. Hann var rekinn þaðan skömmu síðar og fór þá að vinna fyrir Spacety en samkvæmt opinberum upplýsingum gegndi hann embætti varaforseta alþjóðlegra viðskipta innan fyrirtækisins. Fjölmargir samstarfsmenn hafa bakgrunn úr kínverskri stjórnsýslu.
Ekki liggur fyrir í hverju brot Zheng felst. Hvort að hann hafi, að mati riddaralögreglunnar, stundað einhverskonar iðnaðarnjósnir eða hreinlega kynnt sig sem starfsmann kanadísku geimferðarstofnunarinnar þegar hann var að sinna verkefnum fyrir Spacety – að skreyta sig með slíkum fölskum fjöðrum er litið alvarlegum augum í geimbransanum.
Þannig var vísindamaður sem starfaði fyrir NASA dæmdur í 30 daga fangelsi á dögunum fyrir að ljúga að bandarísku alríkislögreglunni um tengsl sín við geimverkefni sem fjármagnað var af Kínverjum og lá undir grun um iðnaðarnjósnir.
Eins og áður segir liggur ekki fyrir hvaða samninga Zheng á að hafa hjálpað Spacety að handsala hérlendis. Ljóst er þó að hann hefur einhverjar tengingar hingað til Íslands því í febrúar síðastliðnum hélt hann fyrirlestur í gegnum Zoom á vegum Space Iceland / Geimvísinda- og tækniskrifstofunnar.
Að sögn Atla Þórs Fanndal hjá Space Iceland hafi fregnirnar komið honum og fyrirtækinu í opna skjöldu. Kanadískir blaðamenn hafi skyndilega byrjað að hringja í gríð og erg í farsíma hans en hann hafi ekki getað aðstoðað með neinu móti. „Eftir því sem ég best veit virðist málið snúast um eitthvað sem gerðist árið 2018. Það er áður en Space Iceland var raunar til. Við höfum ekki neinar upplýsingar um þessi atvik,“ segir Atli Þór.
Að hans sögn hafi nemi hjá Space Iceland hitt Zheng í heimsókn þess síðarnefnda til Íslands árið 2020. Það hafi leitt til þess að Zheng var fenginn til þess að flytja áðurnefndan fyrirlestur um starfsemi Spacety. Zheng hafi verið sérstaklega áhugasamur um skráningar gervihnattatíðna hérlendis en slíkar skráningar voru ekki komnar í gang hérlendis á þeim tíma. „Við ráðlögðum honum að ræða við Póst- og fjarskiptastofnun vegna þess en ég hef ekki neina vitneskju um að neitt hafi komið út úr því,“ segir Atli Þór.
Reiknað er með að Zheng verði leiddur fyrir dómara á morgun, miðvikudaginn 15. desember, og þá má gera ráð fyrir að ákæran gegn honum verði gerð opinber. Þá mun mögulega ljósi verða varpað á hvers eðlis brot hans er og hvernig tengingin við Ísland er nákvæmlega tilkomin.