fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Netárás var gerð á SaltPay

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 3. september 2021 18:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netárás varð gerð á SaltPay, sem rekur Borgun, í dag, og leiddi það til þess að miklar truflanir hafa víða verið á greiðslukortaviðskiptum. Árásin lýsir sér þannig að netkerfi fyrirtækisins verður fyrir gífurlegu tímabundnu álagi vegna mikils fjölda beiðna úr ólíkum áttum.

Í tilkynningu frá SaltPay segir að vel gangi að bregðast við árásinni. Þá segir enn fremur að ekkert bendi til þess að í árásinni hafi verið komist inn fyrir varnir fyrirtækisins eða yfir viðkvæm gögn:

„Netárás var gerð á SaltPay síðdegis í dag sem varð til þess að talsverðar truflanir hafa orðið á þjónustu fyrirtækisins. Vel gengur að bregðast við árásinni og búist er við að full þjónusta verði komin á að nýju innan skamms. 

Um var að ræða svokallaða dreifða álagsárás eða DDoS-árás sem þýðir að netkerfi fyrirtækisins fær tímabundið yfir sig gríðarlegan fjölda beiðna úr mörgum ólíkum áttum.  

SaltPay biður viðskiptavini sína velvirðingar á þeim truflunum sem árásin hefur valdið í dag. Fyrirtækið hyggst nýta reynsluna sem fékkst af því að verjast árásinni í dag til að efla enn frekar sjálfvirk eftirlitskerfi sín og þannig koma í veg fyrir að sambærilegar árásir valdi truflun á þjónustu í framtíðinni.

Þá vill SaltPay upplýsa að árásin hefur verið tilkynnt til CERT-ÍS, netöryggissveitar Fjarskiptastofu. Fleiri íslensk fyrirtæki hafa orðið fyrir samskonar árásum að undanförnu og upplýsingar um aðferðir árásáraðilana geta mögulega nýst öðrum fyrirtækjum en CERT-ÍS hefur það hlutverk að samhæfa íslenskar varnir gegn tölvuárásum sem þessum. Þá vill SaltPay að lokum taka fram að ekkert bendir til þess að árásaraðilarnir hafi komist inn fyrir varnir fyrirtækisins eða hafi getað nálgast nein gögn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“