Áform borgarinnar um að setja niður sex smáhýsi fyrir heimilislausa í Laugardalnum hafa vakið hörð viðbrögð hjá Reitum fasteignafélagi. Fjallað var um málið í Fréttablaðinu á föstudaginn.
Friðjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Reita fasteignafélags, gerir í erindi til borgarinnar alvarlegar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna og telur áformin grafa undan fyrirætlunum Reita um uppbyggingu á lóðinni Suðurlandsbraut 34.
„Verði deiliskipulagið samþykkt með tilheyrandi neikvæðum áhrifum, áskilur lóðarhafi sér rétt til að endurskoða uppbyggingaráform á Orkureitnum,“ segir í erindi Friðjóns. Þá segir ennfremur:
„Ef úrræðið er ætlað heimilislausum með geðraskanir, áfengis- eða fíknivanda eða vandamál af öðrum toga sem getur haft neikvæð áhrif á umhverfið, meðal annars með tilliti til nálægðar við leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki og almenn útisvæði þar sem mikil umferð barna er, er ljóst að það hentar illa á þessari staðsetningu.“
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur einnig skilað mjög neikvæðri umsögn við deiliskipulagstillöguna, þar sem segir:
„Það er hætt við að mörgum af yngri kynslóðinni muni finnast óþægilegt návígið við tilvonandi íbúa þessa svæðis og muni jafnvel veigra sér við að vera ein á ferð um dalinn.“
„Við erum margbreytileg og þurfum öll okkar pláss í samfélaginu. Það er ekkert sem bendir til þess að fólk með geðrænar áskoranir og/eða vímuefnavanda áreiti börn eða aðra frekar en aðrir. Rannsóknir hafa ekki sýnt fram á að fólk með geðrænar áskoranir beiti ofbeldi í ríkara mæli en aðrir en sýna hins vegar að hópurinn er 10 sinnum líklegri til þess að vera beittur ofbeldi,“ segir í athugsemd Geðhjálpar um málið sem birtist á Facebook-síðu samtakanna.
Geðhjálp segir að sjónarmið Reita og ÍBR séu sorgleg. „Að tengja geðrænar áskoranir við fasteignamat er ósmekklegt og að blanda börnum í umræðuna ber vitni um að fordóma í þá veru að sumt fólk sé hættulegra en annað,“ segir í athugasemdinni.
Samtökin kalla eftir umburðarlyndi gagnvart fjölbreytileika mannlífsins:
„Geðhjálp óskar þess að íslenskt samfélag haldi áfram að auka tillitssemi, umburðarlyndi, samkennd og kærleika í garð þess fjölbreytileika mennskunnar sem er svo ofarlega hjá okkar þjóð í orði. Í samtali um það stöðuga viðfangsefni viljum við taka þátt í og leggja okkar að mörkum.“