Verkefnið „Tæknilæsi fyrir fullorðna“ hefur staðið yfir síðan í vor en um er að ræða námskeið fyrir eldri borgara sem miða að því að gera þá heim snjalltækninnar aðgengilegri, allt frá heimabankanum til samfélagsmiðla.
Námskeiðin hafa verið haldin í allt sumar víðs vegar um Reykjavík í sumar þar sem félagsstarf eldri borgara er starfrækt og tæplega 140 manns komið á námskeið. Nú er síðustu kennsluviku sumarsins að ljúka og ákváðu aðstandendur því að halda rafrænt bingó þar sem nemendur á námskeiðunum, og aðrir eldri borgarar, geta tekið þátt.
Bingóið byrjar klukkan 14:00 í dag og hér er Facebookviðburður þess þar sem allar nánari leiðbeiningar er að finna: Rafrænt bingó fyrir eldri borgara.
Mæðginin Rannveig Ernudóttir og Huginn Þór Jóhannsson áttu upphaflega hugmyndina að námskeiðinu og komu því í framkvæmd með fleira góðu fólki í samstarfi við Reykjavíkurborg. Rannveig er virkniþjálfi og umsjónarkona í félagsstarfi fullorðinna í Reykjavík en Huginn sonur hennar starfar einnig á velferðarsviði Reykjavíkurborgar auk þess að vera nemandi í Tækniskólanum, en hann var áður kennari hjá Skema sem heldur tækninámskeði fyrir börn og unglinga. Auk Rannveigar og Hugins hefur Francesco Barbaccia séð um námskeiðin í sumar en hann er líka virkniþjálfi og umsjónarmaður í félagsstarfi á Norðurbrún 1 í Reykjavík.
„Okkur fannst góð hugmynd að enda sumarið á rafrænu bingói,“ segir Rannveig. „Nú á tímum COVID-19 höfum við heyrt frá mörgum hversu mikið þeiur sakna hefðbundna félagsstarfsins og ekki síst þess að spila saman bingó. Við höfum verið að kenna fólki leiðir til að nýta tæknina á fjölbreyttan hátt og því ekki að spila saman bingó í gegn um tölvuna eða iPadinn?“
Námskeiðin voru upphaflega aðeins hugsuð sem námskeið í sumar en Rannveig segir mikinn vilja hjá öllum að það verði framhald á þeim. Það verði þó að koma í ljós.
Hægt er að smella hér til að skoða Facebooksíðu Tæknilæsis fyrir fullorðna.