Hinn þjóðþekkti leikari, grínisti, handritshöfundur og þýðandi, Gísli Rúnar Jónsson, er látinn. Gísli Rúnar vakti líklega fyrst athygli sem annar leikaranna í grínþáttunum Kaffibrúsakarlarnir frá fyrri hluta áttunda áratugar síðustu aldar. Einnig grínaðist hann með Halla og Ladda á metsöluplötu þeirra „Látum sem ekkert C“.
Gísli var þekktur leikari og lék í fjölmörgum kvikmyndum, meðal annars hinni sígildu gamanmynd „Stella í orlofi“, þar sem hann gerði persónu Antons Einnig var hann atkvæðamikill leikhúsmaður en síðast en ekki síst var hann öflugur þýðandi, ekki síst á leikverkum.
Greint er frá láti Gísla Rúnars á Vísir.is og þar kemur fram að fjölskylda hans hafi sent frá sér tilkynningu, þar sem segir að Gísli hafi látist á heimili sínu í gær. Hann var 67 ára gamall.
Sem handritshöfundur, leikari og leikstjóri kom Gísli að gerð margra Áramótaskaupa auk gamanþáttanna „Fastir liðir eins og venjulega“ og Heilsubælið í Gervahverfi.
Nýjast kvikmyndaverkefni sem Gísli Rúnar tók þátt í var kvikmyndin „Amma Hófí“ þar sem hann leikur lítið hlutverk en myndin var frumsýnd í þessum mánuði.
Nánar má lesa um feril Gísla Rúnars á vefnum Klapptré.