fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
Fréttir

Icelandair eykur tíðni yfir hátíðirnar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. nóvember 2020 15:00

Mynd: Fréttablaðið/Anton

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólaáætlun Icelandair er komin í sölu og miðast við tímabilið 16. desember til 10. janúar 2021. Félagið stefnir að því að auka fjölda áfangastaða og tíðni fluga yfir hátíðirnar miðað við það sem verið hefur undanfarnar vikur, enda margir Íslendingar sem búa erlendis sem kjósa að koma heim yfir jól og áramót. Í ljósi fyrirkomulags á landamærum hafa sóttvarnaryfirvöld mælt með að fólk komi heim í síðasta 18. desember til þess að eiga möguleika á að vera laus úr sóttkví á aðfangadag.

Í Evrópu stefnir félagið að því að fljúga til og frá Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi, Amsterdam, London, París, Frankfurt og Berlín. Í Norður Ameríku stefnir félagið á flug til og frá Boston, New York og Seattle.

Vegna Covid-19 faraldursins hefur flugáætlun allra flugfélaga í heiminum raskast verulega. Icelandair hefur á undanförnum vikum og mánuðum lagt áherslu á að koma farþegum sem ætla sér að ferðast á áfangastað, ýmist með breytingu á flugi eða í gegnum önnur flugfélög, án auka kostnaðar. Farþegum hefur einnig staðið til boða að breyta flugi sínu hvenær sem er án breytingagjalds.

Icelandair mun leggja allt kapp á að koma farþegum á áfangastað fyrir jól og áramót. Aðstæður eru þó síbreytilegar á mörkuðum félagsins og fari svo að einstaka flug verði fellt niður, verður það tilkynnt með góðum fyrirvara og Icelandair mun leysa úr málum farþega.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir þetta um málið: „Við finnum fyrir auknum áhuga á flugi yfir hátíðirnar, fyrst og fremst frá Íslendingum sem vilja komast heim og verja jólum og áramótum með sínum nánustu. Það er mikilvægt hlutverk okkar að tryggja góðar samgöngur til og frá landinu og við ætlum að mæta þessari eftirspurn með því að bjóða fleiri áfangastaði og aukna tíðni en við höfum getað boðið upp á undanfarnar vikur. Fari svo að einhverjar breytingar verði á flugáætluninni munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma farþegum okkar á sinn áfangastað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Einar óttast að lýðræðið sé að hverfa – „Höfum við misst stjórnina?“

Einar óttast að lýðræðið sé að hverfa – „Höfum við misst stjórnina?“
Fréttir
Í gær

Árásarmaður Rushdie fær þungan dóm

Árásarmaður Rushdie fær þungan dóm
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri

Skrímslið Brynjar Joensen enn einu sinni fyrir dóm – Sakfelldur fyrir brot gegn 15 stúlkum undir lögaldri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrír með stöðu sakbornings vegna brunans á Stuðlum þegar 17 ára piltur lést

Þrír með stöðu sakbornings vegna brunans á Stuðlum þegar 17 ára piltur lést
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins

Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ása er stolt af því að vera þingkona: „Það er þó eitt við þetta starf sem ég er enn að reyna að skilja“

Ása er stolt af því að vera þingkona: „Það er þó eitt við þetta starf sem ég er enn að reyna að skilja“