fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Læknir gagnrýnir Almannavarnanefnd harðlega

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 21. apríl 2020 09:16

Þríeykið. Mynd: Fréttablaðið/Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðbrögð þjóða hafa verið mismunandi og jafnvel síbreytileg samkvæmt „vísindalegri“ ráðgjöf. Áhugaverð voru gjörólík viðbrögð t.d. Svíþjóðar með Karólínska að bakhjarli sem upphaflega leyfði allt að 50 manns í hópi og vildi taka tillit til atvinnulífsins og hins vegar Danmerkur sem fór niður í tíu manna hóp. Í tveimur löndum a.m.k. mega ekki fleiri en tveir koma saman. Í flestum löndum er deilt um aðferðir. Geta þetta allt verið vísindi?“

Þetta skrifar Birgir Guðjónsson læknir í grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann gagnrýnir Almannavarnanefnd og þríeykið marglofaða fyrir aðferðir til að hefta kórónuveirufaraldurinn. Megingagnrýnin beinist að ákvörðuninni um samkomubann á hjúkrunarheimilum en Birgir hefur gagnrýnt þá ákvörðun nokkrum sinnum áður í greinum sem hafa vakið athygli. Birgir bendir þó á önnur meint mistök Almannavarnanefndar einnig:

„Almannavarnanefndin íslenska sveipar sig vísindayfirbragði og telur sig ganga framar öðrum með prófum og rakningu snertitilfella. Tuttugu manna hópar voru upphaf lega leyfðir í atvinnurekstri. Tuttugu og eins manns þörf varðaði sektum allt að hálfri milljón. „Mannslíf að veði.“

Það er virðingarvert að nefndin hefur viðurkennt veigamikla yfirsjón, þ.e. að banna ekki fyrr áhorfendur á kappleiki eins og þá hafði víða verið gert í Evrópu. Þetta hefði getað forðað því að annar hver Vestmannaeyingur væri í einangrun eða sóttkví.“

Vanhugsuð aðgerð

„Einhver vanhugsaðasta aðgerðin verður að telja fyrirvaralaust harkalegt heimsóknarbann ættingja á hjúkrunarheimili 6. mars,“ skrifar Birgir. Hann telur bannið vera ómannúðlegt og það hafi ekki náð tilgangi sínum því smit og dauðsföll hafi átt sér stað á hjúkrunarheimilunum.

„Ég benti strax á veikleika þessa fyrirkomulags með bréfi til Embættis landlæknis 7. mars og aftur 10. mars og að smit gæti borist með öðrum og stakk upp á lausn. Þessu var fylgt
eftir með blaðagrein 11. mars Þetta var algjörlega virt að vettugi,“ skrifar Birgir. Hann segir að vistmenn á hjúkrunarheimilum séu sviptir því eina sem skipti þá máli:

„Tugir til hundrað veikburða einstaklingar vítt og breitt um landið sem jafnvel að hluta hafði verið sinnt af ættingjum voru settir í félagslega einangrun. Brosandi starfsfólk, faguryrði og iPadar sem virðast vera orðnir að helgitákni, gera ekkert fyrir jafnvel sjón- og heyrnarskerta einstaklinga með dvínandi minni sem gagnast ekki einu sinni sími. Þeir eru sviptir því eina sem skiptir þá máli, samskiptum við ættingja sem þeir enn þekkja.

„Minni háttar fórn“, „enginn skaði“, heyrist frá þríeykinu.“

Birgir greinir frá níræðum manni sem ekki geti lengur heimsótt heilasjúka og málstola eiginkonu til 70 ára, sem hann hafi heimsótt daglega. Þríeykið hafi sparkað honum burtu, eins og Birgir orðar það.

Birgir segir heimsóknarbannið hafa algjörlega brugðist því starfsmenn hjúkrnarheimilanna hafi borið mörg smit inn á þau. Hann bendir á að engar upplýsingar liggi fyrir um tímasetningu á takmörkun heimsóknarbannsins en það gæti varað í yfir tvo mánuði. Óvíst sé hver muni eftir hverjum þegar sú stund rennur upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“

Þóra Kristín tætir Sjálfstæðisflokkinn í sig – „Þeir eru skjálfandi af heift og bræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust