Gul sóttkvíarvesti hafa selst vel hjá Heimkaup.is sem hóf sölu á vestunum fyrir viku. Þau hafa verið vinsæl meðal göngu og hlaupahópa að sögn Guðmundar Magnasonar hjá Heimkaup.is. Á vestunum er áletrun: Í sóttkví – 2 metrar.
Hugmyndin kviknaði hjá hjónunum Fjölvari Darra Rafnssyni og Önnu Lindu Magnúsdóttur þegar þau voru heima í sóttkví eftir hjólaferð til Kanaríeyja. ,,Við vorum með 32 hjólasnillingar á vegum Karenar Axelsdóttur og Ágústu Eddu Björnsdóttur í Hreyfingu. Allur hópurinn var að sjálfsögðu settur í sóttkví við heimkomu en við höfum verið dugleg að hreyfa okkur og að sjálfsögðu í vestunum. Sem betur fer eru allir einkennalausir á 9 degi í sóttkví,“ segir Darri.
,,Við létum framleiða vestin og setja þau í sölu á Heimkaup.is. Við viljum með þessu létta fólki sem er í sóttkví lífið þannig að að geti fari út að hreyfa sig vel merkt. Vestin hafa verið mjög vinsæl hjá okkur. Við vorum fyrst með vestin á markað fyrir viku og síðan hafa aðrir aðilar látið framleiða sambærileg vesti og sett í sölu. Fólk hefur tekið mjög vel í þetta sem mætir okkur hvort sem það er uppi á fjalli, á hjólum eða á hlaupum,“ segir Darri og bætir við að ágóðinn af sölunni muni renna til Landspítalans til tækjakaupa vegna Covid-19 veirunnar en vestin kosta 2.490 kr. stykkið á Heimkaup.is.