fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Áhrifaríkt myndband um ofbeldi gegn börnum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 22. maí 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur byrjað átak gegn ofbeldi á börnum á Íslandi. Lykilmyndband átaksins, sem sjá má hér neðst í fréttinni,varpar hulunni af feluleiknum sem ríkir í samfélaginu gagnvart ofbeldi á börnum. Átakinu fylgir ákall til almennings um að ganga í breiðfylkingu fólks sem tekur afstöðu gegn ofbeldi á börnum.  Myndbandið má sjá hér og hægt er að skrifa undir ákallið á unicef.is.

„Myndbandið fjallar um þann feluleik sem við teljum ríkja gagnvart ofbeldi á börnum, feluleik sem á sér margar birtingarmyndir,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi. „Feluleikurinn lýsir sér meðal annars í því að við fullorðna fólkið bregðumst of sjaldan við þegar við sjáum, heyrum eða okkur grunar að barn sé beitt ofbeldi, hvort sem það er inni á heimilum, í búðinni, í blokkinni eða í bæjarfélaginu,“ segir Steinunn. Feluleikurinn birtist auk þess í því að stjórnvöld hafa hingað til ekki tekið á ofbeldi gegn börnum af nægilegri festu og ekki haft fullnægjandi eftirlit með umfangi vandans, sem er forsenda þess að hægt sé að vinna markvisst gegn ofbeldinu.

„Ég held að flest okkar geti tengt við atvik þegar við vissum ekki hvort væri best að skipta sér að eða láta kyrrt liggja. Í flestum tilfellum er það vegna þess að fólk einfaldlega veit ekki hvað er best að gera,“ segir Steinunn. Dæmin sýna einnig að mörg börn reyna að segja frá ofbeldinu áður en nokkuð er gert á meðan sum þeirra deila reynslu sinni aldrei með neinum fyrren á fullorðinsárum.

Bylting fyrir börn á Íslandi

 Samhliða átakinu gefur UNICEF út nýja tölfræði sem teiknar upp mynd af þróun ofbeldis gegn börnum hér á landi og afleiðingum þess síðastliðinn  áratug. Þar kemur fram að 16,4% barna verða fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára afmælisdaginn sinn.

„Að þurfa að burðast með slíkan sársauka getur haft alvarlegar afleiðingar á barnið til frambúðar. Þess vegna boðum við hjá UNICEF til byltingar fyrir börn og viljum að allt samfélagið standi saman til að stöðva feluleikinn, læri að bregðast við ofbeldi og þrýsti á stjórnvöld að standa vaktina,“ segir Steinunn.

Myndbandinu fylgir ákall til almennings um að mynda breiðfylkingu fólks sem hefur ekkert umburðarlyndi fyrir ofbeldi. Allir sem skrifa undir þetta mikilvæga ákall fá sendar upplýsingar um hvernig á að bregðast við þegar grunur leikur á að barn sé beitt ofbeldi. Hægt er að skrifa undir ákallið hér.

UNICEF mun síðan nota slagkraftinn sem myndast með undirskriftunum til að þrýsta á stjórnvöld að stofna Ofbeldisvarnarráð sem rannsakar og safnar markvisst upplýsingum um ofbeldi gegn börnum á Íslandi og beitir sér fyrir forvörnum og fræðslu. Auk þess setur UNICEF fram kröfu um að öll sveitarfélög landsins séu með skýra viðbragðsáætlun gegn ofbeldi.

„Öll börn eiga rétt á ofbeldislausri æsku“

 „Öll börn eiga rétt á ofbeldislausri æsku. Við vonumst til að myndbandið hreyfi við fólki og að við náum að búa til breiðfylkingu fólks sem beitir sér fyrir réttindum barna. Saman getum við stöðvað þennan feluleik og þrýst á stjórnvöld að standa vaktina,“ segir Steinunn.

Í myndbandinu leika fjöldi barna sem öll gáfu vinnu sína til málefnisins. Það eru þau Agata Árnadóttir Coadou, Elvar Gauti Arnarsson, Kolfinna Tía Steindórsdóttir, Kormákur Kaj Steindórsson, Hrafntinna Mía Steindórsdóttir, Einar Sveinn Nordahl, Sigrún Ásta, Urður Steinarsdóttir, Friðrik Atli Jónsson, Daði Rafn Grétarsson, Kjartan Páll Kolbeinsson, Bríet Sóley Valgeirsdóttir, Anna Sindradóttir og Jóhann Daði Jónsson.

Auglýsingastofan Pipar vann markaðsátakið og myndbandinu er leikstýrt af Hannesi Þór Arasyni hjá SKOT. Allir sem komu að gerð átaksins og myndbandsins gáfu stóran hluta vinnu sinnar. Kvika, sem er velunnari heimsforeldra UNICEF,  kom inn með dýrmætan stuðning við gerð myndbandsins.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga