Ferðamálastofa hélt í dag hádegiskynningu þar sem kynntar voru niðurstöður rannsóknar um fjölda og dreifingu ferðamanna á Íslandi árið 2018. Niðurstöðurnar byggjast á fjölda áfangastaða um allt land. Verkefnið unnu Gyða Þórhallsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson samkvæmt aðferðarfræði sem þau hafa þróað undanfarin ár. Aðferðarfræðin byggir á talningu bifreiða á áfangastöðum til að meta fjölda ferðamanna.
„Talningar eru ein leið til að meta hvert ferðamenn fara og hve margir ferðamenn eru á helstu áfangastöðum og út frá þeim má sjá hvernig ferðamenn dreifast um landið. Einnig má greina árstíðasveiflu á tamningastöðunum. Hér eru því á ferðinni afar mikilvæg og áhugaverð gögn við skipulag og uppbyggingu í ferðaþjónustu.“
Samkvæmt niðurstöðum verkefnisins dró mikið úr þeirri fjölgun ferðamanna sem varð eftir árið 2010. Hins vegar kom í ljós að Suðurland er vinsælt meðal ferðamanna allt árið um kring en árstíðasveifla er mun meiri annars staðar á landinu.
Snæfellsnes og Borgarfjörður virðast njóta aukinna vinsælda og fjölgaði þar ferðamönnum sem og dreifing yfir árið betri. Áfangastaðir á Norður- og Vesturlandi virðast að sama bragði njóta mestra vinsælda yfir háannatíma ársins, en eru vannýttir utan þess tímabils.
Þó árstíðasveifla sé á morgun stöðum mikil þá benda niðurstöðurnar til þess að hægt mjakist til betri vega.