fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Sjáðu þegar foreldri réðst á 10 ára leikmann Njarðvíkur

Ritstjórn DV
Laugardaginn 14. desember 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér fyrir neðan má sjá myndband af ótrúlegu atviki sem átti sér stað á körfuboltamóti leikmanna í aldursflokknum 10-11 ára á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrra. Foreldri eins barns óð inn á völlinn og réðst á leikmann í liði andstæðinganna.

Maðurinn var nýlega dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hegðun sína. Hann vildi meina fyrir dómi að hann hafi einungis snert koll drengsins. Atvikið átti sér stað í leik Vals og Njarðvíkur. Gerandinn mun vera karlmaður um fimmtugt, faðir drengs í Valsliðinu í þessum aldursflokki. Réðst hann að leikmannni í liði Njarðvíkur, ýtti við drengnum og sló hann í höfuðið.

Samkvæmt frásögn áhorfanda fór drengurinn að hágráta, leikurinn var stöðvaður og mikið uppnám varð í húsinu. Umræddum áhorfanda gramdist hins vegar að gerandinn yfirgaf ekki salinn heldur fylgdist með leiknum til enda.

Valur sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins samdægurs og birtist hún í frétt DV um málið:

„Í ljósi atviks sem átti sér stað á minniboltamóti að Ásvöllum í Hafnarfirði í dag, laugardaginn 28. apríl vill Valur koma eftirfarandi á framfæri.

Valur harmar og fordæmir þá hegðun sem foreldri iðkanda félagsins sýndi af sér og er hún með engu móti ásættanleg og með öllu ólíðandi. Félagið lítur málið mjög alvarlegum augum og mun verða tekið á því með hlutaðkomandi aðilum.

Valur vill koma á framfæri formlegri afsökunarbeiðni til iðkandans auk allra þeirra sem að mótinu komu.“

 

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“
Fréttir
Í gær

Hefur staðan breyst eftir leiðtogafund NATO og hvað þarf Ísland að borga mikið?

Hefur staðan breyst eftir leiðtogafund NATO og hvað þarf Ísland að borga mikið?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda

Rússneskur ráðherra segir að Rússland eigi í miklum efnahagsvanda