fbpx
Þriðjudagur 30.desember 2025
Fréttir

Maður í gæsluvarðhaldi vegna tilraunar til manndráps á unnustu sinni: Atvikið sagt hafa átt sér stað í úrræði á vegum borgarinnar fyrir fíkla

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 8. október 2019 19:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á fertugsaldri var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna tilraunar til manndráps á unnustu sinni í gær.

Greint var frá þessu Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þar kom fram að maðurinn er grunaður um afar grófa líkamsárás og kynferðisofbeldi. Konan var færð á sjúkrahús en hún var alvarlega slösuð. Nú hefur henni verið komið í öruggt skjól samkvæmt lögreglu.

Árásin á að hafa átt sér stað í gámum úti á Granda samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 en þar er um að ræða úrræði á vegum borgarinnar fyrir fíkniefnaneytendur.

Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, tjáði sig um málið við Stöð 2.

„Lögregla var kölluð til vestur í bæ um hádegisbil í gær þar sem barst tilkynning um að þar kona væri slösuð líklegast eftir líkamsárás  og kynferðisofbeldi og fyrstu lögreglumenn sem mættu á vettvang mátu það þannig að hún væri það slösuð að það þyrfti að flytja hana á brott með sjúkrabíl,“

Ævar segir að maðurinn hafi ekki verið á vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

„En hann fannst í miðbæ Reykjavíkur um klukkutíma seinna og var handtekinn og í ljósi aðstæðna var ákveðið að fara fram á gæsluvarðhald yfir honum í Héraðsdómi Reykjavíkur“

Maðurinn var úrskurðaður í 10 daga gæsluvarðhald á hádegi í dag. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er maðurinn meðal annars grunaður um að hafa haldið konunni í hálstaki í einhvern tíma.

„Við erum að skoða hvort þetta sé það alvarleg líkamsáras að það verði að skoða hana sem tilraun til manndráps“

Greint var frá því að maðurinn hafi komið margoft við sögu hjá lögreglu og verið meðal annars dæmdur fyrir ofbeldisbrot og heimilisofbeldi. Hann hafði setið inni fyrir brot sín en losnaði úr fangelsi í sumar.

Í dómi yfir manninum frá 2017 er hann sagður vera verulega hættulegur og að yfirleitt sé notast við sérsveit þegar afskipti eru höfð af honum.

Ævar segir síðan í lok fréttarinnar að konunni hafi verið komið fyrir þar sem öryggi hennar sé tryggt en hún var útskrifuð af slysadeild í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjárhagslegt ofbeldi og vanræksla gagnvart eldra fólki – „Í mörgum tilfellum á ofbeldið sér stað innan fjölskyldu“

Fjárhagslegt ofbeldi og vanræksla gagnvart eldra fólki – „Í mörgum tilfellum á ofbeldið sér stað innan fjölskyldu“
Fréttir
Í gær

Skjólshús – Nýtt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu

Skjólshús – Nýtt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu
Fréttir
Í gær

Svíþjóð brást of seint við skipulagðri glæpastarfsemi – Ísland hefur enn tíma

Svíþjóð brást of seint við skipulagðri glæpastarfsemi – Ísland hefur enn tíma
Fréttir
Í gær

Egill tætir í sig myndband Miðflokksmanna – „Í Kópavogi var rekið það sem kallaðist Fávitahæli“

Egill tætir í sig myndband Miðflokksmanna – „Í Kópavogi var rekið það sem kallaðist Fávitahæli“
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl