Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.
Ef þú hefur einhverjar upplýsingar um manninn biður lögreglan þig um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið johann@eyvindsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að myndin gæti verið skýrari en klæðaburður mannsins ætti þó að geta gefið vísbendingar.
Uppfært 21 október klukkan 20:30:
Lögreglan hefur tilkynnt að maðurinn sem lýst var eftir hér fyrir ofan hefur gefið sig fram. Í tilkynningu frá lögreglu þakkar hún fyrir veitta aðstoð.