Þegar maðurinn var stoppaður komst lögreglan að því að maðurinn var með kannabisefni í kaffimáli í bílnum. Sýnatökur á lögreglustöð gáfu til kynna að hann hefði neytt kannabisefna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Auk þess hafa allmargir ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur á svæðinu í vikunni. Sá sem ók hraðast mældist á 130 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Lögregla var einnig með eftirlit með notkun ökuljósa og voru tólf ökumenn áminntir um að hafa kveikt á ökuljósum bifreiða sinna.