Fyrr í dag gaf BBC út lista yfir 100 áhrifamestu konur heims. Á listanum eru konur úr öllum áttum en allar eiga þær það sameiginlegt að vera áhrifamiklar og hvetjandi.
Á listanum er ein íslensk kona en það er hún Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir. Ugla er kynjafræðingur, kvikmyndagerðakona, blaðamaður og trans aktívisti en hún hefur vakið athygli fyrir baráttu sína fyrir bættum réttindum trans fólks.
Á BBC kemur fram að Ugla hafi einnig unnið í verkefninu All About Trans sem snýst um að gera ímynd transfólks í fjölmiðlum jákvæðari. Ugla skrifaði síðan bókina Trans Teen Survival Guide ásamt Fox Fisher.