Barnið brenndist eftir að það náði að teygja sig í bolla með heitu vatni sem stóð á borði á heimili þess. Þá helltist óvart úr bollanum yfir barnið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Barnið var flutt á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi en ekki er vitað nánar um líðan þess.